Hjartaþræðingartækið bilaði í miðri aðgerð Kjartan Atli Kjartansson skrifar 31. október 2014 11:04 Sigurður Björnsson segir frá reynslu sinni í grein í Fréttablaðinu í morgun. „
Þarna lá ég með þráðinn, sem lá eftir æðakerfinu frá úlnlið og inn að hjarta og beið meðan tæknimenn dreif að til að gera við tækið,“ segir Sigurður Björnsson, viðskipta- og stjórnsýslufræðingur, í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun. Með greininni vill Sigurður vekja athygli á slæmum tækjabúnaði og fjársvelti á Landspítalanum. Sigurður segist þó afar ánægður með það starfsfólk spítalans sem annaðist hann þegar hann fór í hjartaaðgerð árið 2012. Hann segir starfsfólið standast samanburð við það besta sem gerist í öðrum löndum og að það hafi komið honum til góðrar heilsu á ný. Sigurður segir frá því að í desember 2012 hafi hann gengist undir hjartaskurðaðgerð á Landspítalanum. „Ég hafði fyrir þessi veikindi ekki áttað mig á því hve hart hefur verið gengið fram í niðurskurði heilbrigðisþjónustunnar á undangengnum árum. Eftir að hafa verið mjög heilsuhraustur alla tíð og í góðu líkamlegu formi, átti ég þrautagöngu milli margra lækna í heil tvö ár, áður en lagt var í dýrar rannsóknir sem loks leiddu sjúkdóminn í ljós.“ Hann segir orsökina fyrir löngum biðlista í aðgerðina hafa verið gamlan og slæman tækjakost: „Langur biðlisti var í hjartaþræðingu. Ástæðan var gamall og bilaður tækjabúnaður og skortur á sérfræðingum til að framkvæma þessa aðgerð. Loks komst ég í hjartaþræðinguna, en þá vildi ekki betur til en svo að í miðri aðgerðinni bilaði hjartaþræðingatækið. Þarna lá ég með þráðinn, sem lá eftir æðakerfinu frá úlnlið og inn að hjarta og beið meðan tæknimenn dreif að til að gera við tækið. Umhyggjusamur læknirinn sem stjórnaði aðgerðinni fullvissaði mig um að engin hætta væri á ferðum, en ég get ekki sagt að ég hafi verið rólegur meðan verið var að gera við þræðingatækið. Niðurstaðan eftir hjartaþræðinguna var að ég þurfti að fara í skurðaðgerð.“ Aftur þurfti Sigurður að fara á biðlista, en samt sem áður jókst tiltrú hans á starfsfólk spítalans: „Margra vikna bið var eftir aðgerð. Ég þurfti að treysta á lyf og bráðamóttöku hjartadeildar ef veikindin ágerðust. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir öllum þeim fjölda sérfræðinga sem kemur að jafn stórri aðgerð og ég þurfti að gangast undir. En ég fékk mikið traust á öllu þessu fólki.“ Starfsfólk spítalans var á miklum þönum að sögn Sigurðar, en það hugsaði samt mjög vel um sjúklingana. Sigurður nefnir sérstaklega yfirlækni skurðdeildarinnar, sem hann segir hafa birst á öllum tímum til að líta eftir sjúklingum sínum. Sigurði þótti greinilegt að álagið var mikið, en umhyggjan hafi líka verið mikil. En tækjakostur og húsnæðið var ekki á sama stalli og starfsfólkið: „Þegar ég vaknaði eftir skurðaðgerðina og opnaði augun, eftir margra klukkutíma svæfingu, sá ég að kerfisloftið fyrir ofan rúmið í herberginu hafði verið rifið niður og við blöstu berar víraflækjur og pípulagnir. Að lokum fjallar Sigurður um forgangsröðun í stjórnmálunum: „Ég var mjög bjartsýnn eftir síðustu alþingiskosningar. Það urðu kynslóðaskipti í pólitíkinni og ég bjóst satt að segja við nýrri forgangsröðun. En sú kynslóð stjórnmálamanna sem tekin er við virðist helst þjóna þröngum hagsmunum. Hefur lítinn áhuga á sjúklingum og þeim sem minna mega sín. Kannski hefði fólk í ríkisstjórninni gott af því að dvelja um tíma meðal sjúklinga á Landspítalanum og kynnast á eigin skinni fjársveltinu, sem er að skerða hættulega mikið gæði heilbrigðisþjónustunnar í landinu.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira