Kröfur um miklar launahækkanir á ný samtök í sjávarútvegi Heimir Már Pétursson skrifar 31. október 2014 13:36 Formaður Framsýnar á Húsavík segir sameiningu samtaka í sjávarútvegi rökrétt. Þau leiði vonandi til þess að loksins verði samið við sjómenn. Krafa um allt að 30 prósenta launahækkun.
Formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík telur að auðveldara verði að semja um kjör verkafólks eftir samneiningu Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva í dag. Verkafólk þurfi að fá allt að 30 prósenta launahækkun í komandi kjarasamningum eftir áramót. Stærstu samtök í sjávarútvegi á íslandi verða formlega sameinuð í dag þegar Landssamband islenskra útvegsmanna og Samtök fiskvinnslustöðva sameinast undir hatti Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á Hilton Nordika hótelinu í dag. Jens Garðar Helgason er einn í framboði til formanns hinna nýju samtaka. Sameinuð verða þessi hagsmunasamtök risi á íslenskum vinnumarkaði þar sem stærsti hluti fiskveiða annarra en smábáta og meira og minna öll fiskvinnsla í landinu sameinast. Aðalsteinn Baldursson formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík hefur lengi haldið því fram að sjávarútvegurinn geti borgað hærri laun, en kjarasamningar verða allir lausir með næsta vori. Sameining þessara samtaka sé rökrétt. „En hins vegar hef ég auðvitað ákveðnar áhyggjur af þeirri stefnu sem hefur verið hjá LÍÚ sem felur í sér að sjómenn hafa verið samningslausir í nokkur ár. Þar vísa ég ábyrgðinni á LÍÚ og ég vona að svo verði ekki að ný samtök sjái ekki ástæðu til að semja við okkur,“ segir Aðalsteinn. Aðalsteinn hefur á stundum ásamt öðrum verkalýðsleiðtogum mælt með því að verkalýðsfélög semji hvert fyrir sig við atvinnurekendur ekki hvað síst með þeim rökum að sjávarútvegurinn gangi vel og geti greitt hærri laun. En nú mælir hann með því að félögin mæti atvinnurekendum í samfloti og segir að miðað við þær hækkanir sem einstakir aðrir hópar hafi fengið eftir kjarasamninga á almennum markaði í fyrra þurfi að sækja miklar leiðréttingar á kjörum almenns verkafólks.Ertu þá til í að segja að það þurfi að sækja 20 til 30 prósenta launahækkun á næsta samningstímabili? Já alveg hiklaust. Ég bendi t.d. á að bílstjóri með mikla reynslu er með í dag 2220 til 230 þúsund krónur á mánuði. Þrjátíu prósenta launahækkun hjá honum þýddi að hann kæmist upp í tæpar 300 þúsund krónur og það eru ekki of mikil laun fyrir það starf. Þannig að ég segi það hiklaust, já,“ segir Aðalsteinn Baldursson og það verði krafan í komandi kjaraviðræðum.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira