Tveggja ára bið verður enn lengri vegna verkfalls Hjörtur Hjartarson skrifar 31. október 2014 20:00
Biðlistar lengjast ár frá ári og fjöldi þeirra sjúklinga, sem bíða í þrjá mánuði eða lengur eftir að komast í aðgerð, fer fjölgandi. Tæplega 1800 manns bíða eftir aðgerð á augasteini, 138 eftir hjarta eða kransæðaaðgerð, um 650 manns eftir gerviliðaaðgerð og um 90 konur eru á biðlista eftir legnámsaðgerð. Einn þessara sjúklinga er Erling Magnússon en hann hefur þurft að bíða í ríflega tvö ár eftir því að komast í hjartaaðgerð. „Það er farið inn í hjartað og mér skilst að það sé stungið þar á milli hjartahólfa og brennt fyrir æðar sem koma inn í hjartað, þetta er í rauninni eins og rafsuða. Það er brenndur hringur í kringum þessar æðar og það á að stoppa einhver auka rafboð sem eru að koma inn í hjartað og eru að rugla það.“ Erling segir að hjartagallinn hái honum mikið. Hann verði oftsinnis fyrir andnauð, hvort heldur við áreynslu eða í kyrrstöðu. Þá sofi hann oft á tíðum illa og jafnvel ekkert. Hann átti tíma á þriðjudaginn en verkfallið kom í veg fyrir að aðgerðin færi fram.Þetta hlýtur aðvera mjögóþægileg tilfinning að þurfa aðbíða svona lengi? „Já, ég get ekki neitað því, það er það. Ég hefði alveg vilja fara í þetta miklu fyrr. Hættan er aðallega sú hjá mér að þetta getur skapað svona tappa, að blóðið storkni í hjartanu því það er ekki að dæla eins og það á að gera. Og það getur farið upp í haus og upp í heila og þá er maður kominn með heilatappa og getur lamast. Bróðir minn lenti í svona áfalli og er lamaður í dag. Þetta er svona ættgengur kvilli þannig að ég hef oft hugsað um það að maður er í talsvert mikill áhættu.“ Erling hefur ekki fengið nýjan tíma fyrir aðgerðina en hann vonast til að það dragist ekki úr hófi fram.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira