Ellefu vegfarendur slösuðust í níu umferðarslysum Atli Ísleifsson skrifar 20. október 2014 13:56 Bíl var ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut til móts við Ásvelli á þriðjudaginn. Mynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Ellefu vegfarendur slösuðust í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þrjú umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 12. október. Um morguninn var ekið á reiðhjólamann við Olís í Norðlingaholti, en hann hafði hjólað meðfram Suðurlandsvegi í austur og áleiðis inn að bensínstöðinni þegar bifreiðinni var ekið að henni eftir afrein af Suðurlandsveginum. „Ökumaðurinn blindaðist af lágt liggjandi morgunsólinni og ók utan í hjólið. Einnig hafði illa verið skafið af rúðunum. Reiðhjólamaðurinn meiddist minniháttar. Hann fór til athugunar á slysadeild.“ Í frétt lögreglunnar segir að klukkan 13.45 sama dag varð hörð aftanákeyrsla á Höfðabakka við gatnamót Bæjarháls. Við áreksturinn kastaðist fremri bifreiðin aftan á þá þriðju. „Ökumaðurinn hafði ætlað að hemla þegar hann nálgaðist gatnamótin en fyrir slysni stigið á bensíngjöfina í stað hemla með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti aftan á kyrrstæðri bifreiðinni framundan. Ökumaður hennar kenndi til eymsla og ætlaði að leita aðhlynningar á slysadeild. Við athugun á hjólbörðum bifreiðar tjónvalds kom í ljós að þeir voru nær rennisléttir og því varhugaverðir. Og kl. 18.21 lentu tveir reiðhjólamenn saman á Bæjarbraut. Annar kenndi til eymsla á eftir og ætlaði að leita til slysadeildar í framhaldinu.“ Tvö umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 14. október. „Kl. 9.36 valt bíll á Gullinbrú á leið til norðurs eftir að hafa lent þar á ljósastaur og strætisvagnaskýli. Tækjabifreið frá SHS kom á staðinn og þurfti að klippa ökumann bifreiðarinnar út úr flaki bifreiðarinnar. Hann var fluttur mikið slasaður með sjúkrabifreið á bráðamóttöku LSH í Fossvogi til aðhlynningar. Hálkublettir voru á götunni. Klukkan 17.08 síðdegis á þriðjudeginum var bíl ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut til móts við Ásvelli. „Fjórir voru í bifreiðinni og voru tveir af þeim fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahús með minniháttar áverka. Ökumaðurinn fann til í síðu og farþegi í framsæti var ringlaður og fann til í úlnlið.“ Miðvikudaginn 15. október um klukkan 16 var ung stúlka að hjóla á gangstéttinni á bak við Asparfell 12 þegar skóreim festist í keðjunni með þeim afleiðingum að hún féll við og meiddist á mjöðm, læri og á höfði. Stúlkan var ekki með hjálm. Í fréttinni segir að sjúkralið hafi komið á vettvang og eftir stutta skoðun var ekki talin ástæða að flytja hana á slysadeild. Föstudaginn 17. október voru tvö umferðarslys tilkynnt til lögreglu. Klukkan 0.53 var bifreið ekið vestur Hringbraut í Reykjavík þegar ökumaður þurfti að snögghemla. „Við það lenti bifreiðin utan í götuljósavita og stöðvaðist á grindverki. Ökumaður og farþegi kvörtuðu yfir eymslum í baki eftir að líknarbelgir sprungu út. Þeir ætluðu að leita læknisaðstoðar ef þurfa þyrfti. Kl. 15.16 lenti hjólreiðarmaður fyrir bifreið á gatnamótum Bæjarháls og Bitruháls. Bifreiðinni var ekið suður Bitruháls með hægri beygju eftir aðrein, áleiðis vestur Bæjarháls, en reiðhjólinu var hjólað austur eftir gangstétt norðan við Bæjarháls, áleiðis yfir gatnamót Bitruháls. Hjólreiðamaðurinn hlaut meiðsl á vinstri öxl og átti erfitt með öndun. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.“ Laugardaginn 18. október varð svo fjórhjólaslys utan vegar við Þingvallaveg nálægt Skálafellsafleggjara. „Ökumaðurinn rotaðist og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.“ Lögregla minnir á að nauðsynlegt sé að ökumenn hreinsi vel hrím af rúðum bifreiða sinna – áður en lagt er af stað. „Þá þarf dekkjabúnaður að taka mið af aðstæðum. Brýnt er að ökumenn hagi akstri í samræmi við gildandi lög og reglur hvað varðar leyfðan hámarkshraða á hverjum stað og virði hraðatakmarkanir. Aldrei er of varlega ekið. Ökumenn þurfa jafnan að vera vel fyrir kallaðir og aki ekki þreyttir og/eða undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Mikilvægt er að hjólreiðafólk fari varlega og sýni góða aðgæslu á ferðum sínum, ekki síst nú í skammdeginu. Börn eiga að nota hjálm þegar þau eru að hjóla. Slysum hefur fækkað jafnt og þétt á ökumönnum og farþegum bifreiða, en fjölgað að sama skapi á reiðhjólafólki. Lögreglan bendir vegfarendum vinsamlegast á að öll berum við ábyrgð í umferð, bæði á okkur sjálfum og öðrum og því mikilvægt að sýna aðgæslu og tillitssemi í hvívetna, alltaf.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira