Hvetja yfirvöld til að ákveða framtíðarstöðu Hólaskóla Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. október 2014 12:20 Háskólinn á Hólum. vísir
Útlit er fyrir að uppsafnaður halli Háskólans á Hólum muni nema 178 milljónum króna í árslok 2014. Ríkisendurskoðun hefur því lýst yfir þungum áhyggjum vegna skulda skólans og hvetur yfirvöld menntamála og forráðamenn skólans til að taka á þessum vanda sem fyrst. Jafnframt þurfi yfirvöld að ákveða framtíðarstöðu skólans. Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Vakin var athygli á erfiðri fjárhagsstöðu Háskólans á Hólum árið 2011. Skólinn glímdi við mikinn uppsafnaðan halla og háar skuldir, einkum við ríkissjóð. Að mati ríkisendurskoðunar vakti þetta spurningar um hagkvæmni Hólaskóla sem rekstrareiningar. Skólinn þarf að hafa tiltekinn lágmarksfjölda ársnemenda til að geta staðið fjárhagslega undir þeim faglegu kröfum sem gerðar eru til háskóla. Fjöldi nemenda við Hólaskóla náði þó aldrei þessu lágmarki. Ríkisendurskoðun skilaði inn tíu ábendingum til skólans og mennta- og menningarmálaráðuneytisins í skýrslu sinni árið 2011. Telur Ríkisendurskoðun þó að skólinn hafi ekki brugðist sem skyldi við níu af þessum ábendingum. Ráðuneytið var þá meðal annars hvatt til að ákveða framtíðarstöðu Hólaskóla, tryggja að rekstur hans rúmaðist innan fjárheimilda og finna varanlega lausn á skuldum skólans við ríkissjóð. Stjórnendum skólans var m.a. bent á að þeir yrðu að temja sér aga og fagleg vinnubrögð við fjármálastjórn til að tryggja að rekstur skólans væri innan fjárheimilda. Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að fjárhagsstaða Hólaskóla hefur versnað frá árinu 2010. Í árslok 2013 nam uppsafnaður halli skólans 157 milljónum króna sem samsvaraði um 52% af fjárveitingu ársins. Heildarskuldir skólans námu 245 milljónum króna, þar af nam skuld við ríkissjóð 233 milljónum króna. Útlit er fyrir að uppsafnaður halli muni nema 178 milljónum króna í árslok 2014. Að mati Ríkisendurskoðunar er fjárhagsstaða Hólaskóla mikið áhyggjuefni og brýnt að ráðuneytið og forráðamenn skólans taki á vandanum sem fyrst.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira