Óttast aukinn kostnað við nám Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 21. október 2014 19:30
Mikilvægt er að aldurinn komi ekki í veg fyrir að fólk komist í framhaldsskóla. Þetta segir þrjátíu og þriggja ára framhaldsskólanemi sem efast um að hafa efni á námi verði aðgengi þeirra sem eldri eru að skólunum takmarkað. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ hefur síðustu ár verið boðið upp á nám sem kallast leikskólabrú. Námið er á framhaldsskólastigi og er fyrir þá sem vilja verða leikskólaliðar eða stuðningsfulltrúar. Í dag eru hátt í sextíu nemendur í náminu. Flestir eru konur sem eru eldri en 25 ára. Skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ telur að leggja þurfi námið niður, verði áform ríkisstjórnarinnar um að takmarka aðgengi nemenda 25 ára og eldri að framhaldsskólum, að veruleika. Marta Jónsdóttir er ein þeirra sem stundar nám á leikskólabraut skólans. Hún fór ekki í framhaldsskóla á sínum tíma þar sem hún eignaðist ung að árum börn. Eftir að hafa unnið sem leiðbeinandi á leikskóla í 14 ár langaði hana að mennta sig á því sviði. Hún komst ekki inn í Kennaraháskólann þar sem hún hefur ekki stúdentspróf og fór þess vegna í Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Hún segir menntunina skipta sig miklu máli því hún sé stökkpallur fyrir hana til að komast inn í háskólanám. Menntamálaráðherra hefur sagt að ýmis önnur úrræði séu í boði fyrir þá sem eru eldri en 25 ára eins og símenntunarstöðvar. Marta segir að í dag greiði hún tæplega 40 þúsund krónur fyrir önnina en hún þyrfti að greiða mun meira fyrir aðrar leiðir. Hún hafi ekki efni á því. Hún telur mikilvægt að aldurinn komi ekki í veg fyrir að hún og aðrir í hennar sporum mennti sig þar sem það sé of kostnaðarsamt.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira