Ók undir áhrifum kókaíns og kýldi mann í framan Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. október 2014 13:52 Maðurinn sem ráðist var á fór fram á 1,2 milljónir í skaðabætur en dómurinn taldi 400 þúsund krónur nægar bætur. Vísir/Getty
22 ára karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að nef- og kinnbeinsbrotið annan mann og að hafa ekið bíl sviptur ökuréttindum undir áhrifum áfengis og kókaíns. Maðurinn játaði brot sín við meðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Tvær ákærur voru teknar fyrir í héraði á sama tíma. Annars vegar var hann stöðvaður við Flugvallarveg í janúar síðastliðnum með of mikið magn áfengis í blóðinu (0,89 prómill) og sömuleiðis undir áhrifum kókaíns. Þá hafði maðurinn í fórum sínum maríhúana. Þá var tekin fyrir ákæra vegna líkamsárásar í maí 2013 þar sem maðurinn sló annan mann hnefahöggi í andlitið við Fálkagötu í Reykjavík. Féll maðurinn í götuna með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut nef-, miðnes- og kinnbeinsbrot og áverka á neðanaugntóttartaug. Maðurinn á nokkurn sakaferil að baki og var í nóvember fyrir ári dæmdur í sextíu daga fangelsi fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot. Með hliðsjón af greiðri játningu ákærða og því að hann féllst á greiðslu skaðabóta var fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi talið hæfileg refsing. Skilorðið er til tveggja ára. Maðurinn sem ráðist var á fór fram á 1,2 milljónir í skaðabætur en dómurinn taldi 400 þúsund krónur nægar bætur.Dómurinn í heild sinni.
Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Khamenei látinn Erlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Innlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Árás á Íran, Háskóladagurinn og stórkostlegur endurkomusigur Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Frostlaust sums staðar sunnan heiða Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Vendingar í borginni, vandræði vegna verktaka og Pepsi-sátt Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Sjá meira