Forseti ASÍ boðar hörku í kjaraviðræðum Heimir Már Pétursson skrifar 22. október 2014 19:57
Forseti Alþýðusambandsins segir allt benda til að sú tilraun sem gerð hafi verið með kjarasamningum á almennum markaði í fyrra hafi mistekist. Ljóst sé að núverandi ríkisstjórn sé fyrir ríka fólkið í landinu og verkalýðshreyfingin verði að beita afli sínu til að forða því að Ísland verði land misskiptingarinnar. Þriggja daga þing Alþýðusambandsins hófst í dag. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ minnti á það í setningarræðu sinni að launafólk hefði glatað fjórðungi kaupmáttar síns í hruninu. Hann fór yfir gerð síðustu kjarasamninga sem mörg aðildarfélaga ASÍ felldu vegna tortryggni í garð stjórnvalda. Þeir samningar hafi verið tilraun til lngtíma sáttar á vinnumarkaði. „Í aðdraganda samninganna settum við fram ýmsar kröfur og Forsendur fyrir slíkri sátt, bæði gagnvart atvinnurekendum, Félögum okkar í öðrum samtökum launafólks og síðast en Ekki síst gagnvart stjórnvöldum,“ sagði Gylfi. Síðan rakti Gylfi hvernig forsendur þessa vopnahlés hefðu smátt og smátt brostið með samningum sem ríki og sveitarfélög gerðu við einstaka hópa sem gáfu mun meiri launahækkanir en samið hafði verið um á almennum markaði. Þá hefðu stjórnvöld rofið friðinn með margvíslegum aðgerðum í skattamálum og hækkun gjalda og niðurskurði. Þá hefðu stjórnendur fyrirtækja skammtað sjálfum sér veglegar launahækkanir. „Þrátt fyrir að okkur hafi tekist að kveða niður verðbólguna a.m.k. tímabundið, þá bendir allt til þess að sú tilraun sem gerð var með samningunum í desember 2013 hafi mistekist. Í stað þess að uppskera eins og sáð var til, stöndum við frammi fyrir erfiðum ákvörðunum og breyttri samningsstöðu,“ sagði Gylfi. Forseti ASÍ sagði að vaxandi misskipting og aðför að velferðarkerfinu hefði fært samskipti á vinnumarkaði aftur um áratugi og gaf í skyn að farið yrði fram af hörku við gerð samninga í vor. „Nú er einfaldlega komið nóg. Það er ljóst að ríkisstjórnin er fyrir ríka fólkið og verkalýðshreyfingin verður að beita afli sínu til að Forða því að Ísland framtíðarinnar verði land misskiptingar og Glataðra tækifæra. Land þar sem fyrirtækjum og efnafólki eru Hyglað á kostnað alls almennings,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson við setningu þings ASÍ í dag.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira