Sex mánuðir á skilorði eftir barsmíðar á B5 Kjartan Atli Kjartansson skrifar 23. október 2014 12:32 Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum B5. vísir/pjetur
Karlmaður búsettur í Hafnarfirði hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að brjóta glas í andliti annars manns og ganga í skrokk á honum. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjaness á mánudaginn en atvikið átti sér stað fyrir rúmlega tveimur árum. Í niðurstöðum dómsins kemur fram að árásarmaðurinn eigi sakaferil að baki og hafi hann haft áhrif á þyngd refsingar. Sökum þess að málið tafðist í kerfinu ákvað dómari að skilorðsbinda refsinguna. Í maí 2012 var lögreglu tilkynnt að sjúkrabíll hefði verið kallaður út og á leið á skemmtistaðinn B5 í Bankastræti í Reykjavík. Þar væri maður með skurð á andliti. Árásarmaðurinn sagðist fyrir dómi hafa verið staddur á B5 ásamt tveimur mönnum og einni konu sem hann hafi hitt fyrr um kvöldið. Þegar þangað var komið byrjaði maður að áreita konuna í hópnum. Konan segir fyrir dómi að áreitið hafi verið talsvert. Maðurinn sem áreitti hana hafi strokið henni, togað í hana og klipið hana í rassinn. Áreitið var þess háttar að fólkinu í kring stóð ekki á sama. Hún segir frá því að hópurinn sem hún hafi tilheyrt hafi verið hálfhræddur og ákveðið að yfirgefa staðinn, eftir að maðurinn sem áreitti hana hafi rifið skyrtu annars manns. Í dómsorði kemur fram að maðurinn sem var dæmdur hafi viðurkennt að hafa slegið manninn sem áreitti konuna, enda sjáist það á myndbandi úr öryggismyndavél staðarins. Dómara þykir einnig fullsannað að sá dæmdi hafi brotið glas í andliti mannsins sem varð fyrir árásinni. Í læknisvottorði kom fram að sár mannsins væru greinilega eftir glerbrot. Hann fór á slysavarðstofu Landspítalans í kjölfar árásarinnar og þurfti svo að fara aftur daginn eftir til þess að láta fjarlæga glerflís sem var enn í einu sárinu. Maðurinn sem hlaut dóminn var einnig talinn bera ábyrgð á skurðum í andliti konunnar sem hann var með; að glerbrot hafi kastast af andliti mannsins í augu konunnar. Hún segir frá því að þegar hópurinn hafi ætlað að yfirgefa B5, eftir að hún hafi verið áreitt, hafi hún gengið í átt að barnum. Þegar hún hafi litið við hafi hún fengið glas í höndina og hafi glerbrotin meðal annars farið í augu hennar. Kemur fram í dómi að konan hafi talið manninn sem áreitti hana – og fékk glas í andlitið – hafi kastað glasinu. Hún segir frá því fyrir dómi að hún hafi séð manninn sem áreitti hana þegar hún fékk glerbrotin í sig - hann hafi starað á konuna. Hún lagði fram bótakröfu í málinu en dró hana til baka. Taldi hún ákærða ekki hafa slasað sig viljandi óháð því hvort hann kastaði glasinu eða ekki. Raunar sagðist konan ekki hafa séð ákærða inn á B5 þetta kvöld og ekkert þekkja til hans. Var ekki talin ástæða til þess að sakfella ákærða fyrir að eiga sök á sárum í andliti konunnar. Maðurinn fékk sex mánaða skilorðsbundinn dóm sem fellur niður að þremur árum liðnum. Hann var einnig dæmdur til að greiða sakarkostnað upp á 34 þúsund og fjögur hundruð krónur, auk þess sem honum var gert að greiða helming málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, sem eru tæplega 565 þúsund krónur.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira