Eftirlýstar unnu þyrluferð Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. október 2014 17:41 „
Ég var að segja við stelpurnar áðan að þetta væri sennilega eina skiptið sem við fáum eitthvað fyrir að láta pota í píkurnar á okkur. En það er fínt, mjög fínt,“ segir hin hressa Bergljót Halla Kristjánsdóttir, ein þeirra sem vann þyrluferð í happdrætti Krabbameinsfélags Íslands. Hún, ásamt fjórum öðrum eldhressum konum, svöruðu á dögunum kalli Krabbameinsfélagsins sem lýst hefur eftir þeim konum sem ekki höfðu mætt í leghálsskoðun, en yfirskrift leitarinnar er „Hvar eru týndu konurnar?“. Þær gáfu sig því fram á leitarstöð Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð síðastliðinn fimmtudag sem virðist heldur betur hafa borgað sig þar sem þær unnu útsýnisflug með þyrluþjónustunni Reykjavík Helicopters. Áverknis- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélegs Íslands er enn í fullum gangi og hafa fjölmargir lagt fyrirtækinu lið. Reykjavík helicopters og Krabbameinsfélagið gerðu með sér samstarfssamning en hluti ágóða fyrirtækisins mun renna til söfnunarinnar. Þyrla fyrirtækisins er bleik að lit og skreytt bleiku slaufunni og boðið hefur verið upp á „bleikar útsýnisferðir“ í þessum mánuði. „Í október í fyrra sátum við á kaffistofunni og sáum bleika strætóa og allt í bleiku alls staðar. Við fengum þessa hugmynd þá en vorum þá orðnir of seinir. Við ákváðum því að geyma þetta sem leyndarmál og stóðum við það,“ segir Friðgeir Guðjónsson, sölu- og markaðsstjóri Reykjavík helicopters. „Við leituðum til LogoFlex sem sérhæfa sig í verkefnum sem þessum sem mættu með fimm menn og að baki liggja um 60-70 klukkustundir í vinnu. Við erum svo ánægðir með þetta að það getur vel verið að við látum bara mála þyrluna svona,“ bætir hann við.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira