Ekkert nýtt tilboð frá stjórnvöldum í deilum lækna Hjörtur Hjartarson skrifar 23. október 2014 19:30
Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að verkfall lækna hefjist á mánudaginn eftir að samningafundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara rann út í sandinn í dag. Formaður samninganefndar lækna segir tilboð stjórnvalda óbreytt og enn beri því mikið í milli. Næsti boðaði fundur deiluaðila er á mánudaginn, en á miðnætti sama dag hefjast fyrstu verkfallsaðgerðir lækna. Hver vinnustöðvun mun standa yfir í tvo sólarhringa í senn á sjö vikna tímabili. Þá leggja ekki allir læknar niður störf á sama tíma enda verður boðið upp á lágmarksþjónustu. Engu að síður er viðbúið að starfsemi Landspítalans, til að mynda muni fara verulega úr skorðum. Samninganefndir lækna og stjórnvalda hafa fundað reglulega síðan fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir voru boðaðar í byrjun mánaðarins, síðast í dag. „Enn einum fundinum var að ljúka, hvað kom út úr honum?“„Það var nú enginn árangur af þessum fundi,“ segir Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefndar lækna. Ekki frekar en öllum þeim sem verið hafa eftir að þið boðuðuð verkfall?“„Það má segja það.“ Heilbrigðisráðherra sagði á dögunum að launakröfur lækna væru réttmætar en það hefur þó ekki skilað sér í því að gengið sé að þeim kröfum.Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra hefur sagt að kröfur lækna séu réttmætar.Sigurveig segir að mikið beri í milli og ekki virðist breyting í vændum í þeim efnum. Stjórnvöld hafi ekki lagt fram nýtt tilboð síðan verkfallsaðgerðirnar voru boðaðar og að þau standi áfram föst á sínu. Sigurveig segir bæði lækna og sjúklinga hafa áhyggjur af ástandinu. Hún þorir ekki að spá fyrir um hvort verkfallið standi allar sjö boðaðar vikurnar.„Sérðu fram á að þið þurfið að klára þetta verkfall til að eitthvað gerist?“„Ég vona svo sannarlega að við þurfum ekki að klára þetta verkfall. Það vill enginn læknir vera í verkfalli. En þetta lítur ekkert bjart út núna, því miður,“ segir Sigurveig.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira