Gistiskýlið flytur að Lindargötu 48 Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. október 2014 14:42 Gistiskýlið í Þingholtsstræti hefur verið rekið frá árinu 1970. Vísir/Vilhelm
Gistiskýlið flytur starfsemi sínu frá Þingholtsstræti 25 að Lindargötu 48, á horni Lindargötu og Frakkastígs, mánudaginn 27. október. Gestir fara frá Þingholtsstræti að morgni mánudags en mæta að kveldi á Lindargötu. Starfsemi Gistiskýlisins verður óbreytt og áfram er gert ráð fyrir um a.m.k. 20 gestum á nóttu. Engum verður vísað frá en undanfarið hafa næturgestir verið um 20-25. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Aðbúnaður í húsnæðinu að Lindargötu er allt annar en í Þingholtsstræti og ekki þarf lengur að hafa gistingu í tveimur húsum eins og verið hefur allt þetta ár ef gestir hafa verið fleiri en 20. Í húsinu er einstaklingsherbergi, þriggja manna, fimm manna og sex manna herbergi. Gistiskýlið í Þingholtsstræti hefur verið rekið frá árinu 1970. Matsalur og setustofa í nýja skýlinu er miklu stærri, meira aðlaðandi og með betri aðstöðu en var í gamla skýlinu að því er segir í tilkynningunni. Nýlega gaf minningarsjóður Lofts Gunnarssonar skýlinu þægileg rúm og munu þau vera á Lindargötu ásamt öllum öðrum húsgögnum og munum frá Þingholtsstræti. Húsið er á þremur hæðum, gisting er á fyrstu og annarri hæð en eldhús, setustofa og matsalur á þriðju hæð. Góð sturtuaðstaða er á fyrstu tveimur hæðunum og salerni á öllum hæðum. Lyfta er í húsinu til að fara milli hæða. Allar lagnir í húsinu hafa verið endurnýjaðar og brunaútgangar og brunaviðvörunarkerfi eins og best verður á kosið. Lögð verður áhersla á samvinnu þeirra sem koma að málefnum utangarðsfólks en það er Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða sem þjónustar hópinn. Samhjálp rekur Gistiskýlið samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg. Auk þeirra sem koma að Gistiskýlinu starfa Borgarverðir, starfsfólk Dagseturs og nýtt vettvangs- og stuðningsteymi Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða með utangarðsfólki. Vettvangs- og stuðningsteymið er hópur sérfræðinga sem mætir utangarðsfólki á þeirra forsendum, veitir því faglega ráðgjöf og meðferð sem hentar hverjum og einum. Kostnaður við breytingarnar á húsnæðinu við Lindargötu er 110 milljónir króna. Áætlaður rekstrarkostnaður Gistiskýlisins á þessu ári er 66 milljónir króna. Utangarðsfólk býr almennt við alvarlegan heilsubrest, ofneyslu áfengis- og vímuefna, sértæka sjúkdóma, geðfötlun og geðræn vandamál að því er segir í tilkynningunni frá borginni.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira