Afhenti fjóra styrki til rannsóknarverkefna á sviði jafnréttismála Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2014 17:09 Við afhendinguna fyrr í dag. Mynd/Forsætisráðuneytið
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra afhenti í dag fjóra styrki til rannsóknarverkefna á sviði jafnréttismála samtals að upphæð 8,6 milljónir króna í tilefni af kvennafrídeginum og dags Sameinuðu þjóðanna. Styrkina hlutu Björg Hjartardóttir, doktorsnemi við University of British Columbia í Kanada til rannsóknar á Vestur-íslenska kvenréttindablaðinu Freyja, Guðný Björk Eydal prófessor og Ingólfur V. Gíslason dósent við Háskóla Íslands til rannsóknarinnar Jafn réttur til fæðingarorlofs: Hvernig haga pólskir og íslenskir foreldrar atvinnuþátttöku og umönnun barna sinna?, Guðný Gústafsdóttir doktorsnemi við Háskóla Íslands til rannsóknar á mótsögnum kvenleikans, kyngervi og þegnrétti á Íslandi og loks Marta Einarsdóttir sérfræðingur við Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri til rannsóknar á íslensku ofurfjölskyldunni – samræmingu fjölskyldu og atvinnulífs. Í mörgum tilvikum vinna nemar og aðrir samstarfsmenn að rannsóknum með styrkþegum. Í ávarpi hans kom fram að við stofnun Jafnréttissjóðs á þrjátíu ára afmæli kvennafrídagsins 2005 hafi sjóðurinn verið kynntur sem gjöf til jafnréttis- og kvennahreyfingarinnar í landinu og þakklætisvottur fyrir það afl, frumkvæði og nýsköpun sem í henni hefur falist til framfara, mannréttinda og almennrar velsældar í samfélagi okkar. „Forsætisráðherra vék meðal annars að fyrirhugaðri karlaráðstefnu sem Ísland og Súrinam hyggjast standa fyrir í New York á næsta ári og kvað hann tíðindin sem felast í þeirri ráðstefnu fyrst og fremst vera þau að þar verða karlar kallaðir til umræðu um kynbundið ofbeldi,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira