Ræddu aukið samstarf Íslands og Chile á sviði sjávarútvegsmála Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2014 18:51 Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Vísir/Stefán
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Raúl Súnico aðstoðarsjávarútvegsráðherra Chile, áttu í dag tvíhliða fundi ásamt sendinefndum sínum, í Puerto Varas í Chile. Á fundinum var fjallað um sjávarútvegs- og fiskeldismál. Ísland og Chile eru með samstarfsyfirlýsingu frá árinu 2002 um samstarf á sviði sjávarútvegsmála og ræddu ráðherrarnir um að auka þetta samstarf, en viðfangsefni þjóðanna á sviði sjávarútvegs eru að mörgu leyti lík. Í fréttatilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir að Chile sýndi reglum Íslands um togveiðar og svæðalokanir sérstakan áhuga og lýstu yfir áhuga á frekari upplýsingum um aðferðir Íslands við hafrannsóknir og gagnasöfnun. Sjávarútvegur er þriðja stærsta útflutningsgrein Chile og keppast stjórnvöld nú við að stýra veiðum að hámarksafrakstri (MSY). Chile er mikilvægur markaður fyrir íslensk laxahrogn, en fyrir um ári síðan lokuðu þarlensk stjórnvöld fyrir innflutning á íslenskum laxahrognum á grundvelli sjúkdómsvarna. Ráðherrarnir fóru yfir þá ákvörðun og hvernig samvinna embættismanna í Chile og á Íslandi stuðlaði að því að málið leystist og hefur markaðurinn aftur opnast fyrir íslensk hrogn. „Rætt var að viðhalda þessum góðu samskiptum og vinna áfram að þeim úrlausnarefnum sem út af standa,“ segir í tilkynningunni. Viðskipti og samstarf á milli Íslands og Chile er einna helst með laxahrogn og tæknibúnað fyrir fiskvinnslu frá Íslandi og landbúnaðarafurðir og skip frá Chile til Íslands. „Einnig er ljóst að tækifæri eru til staðar í samvinnu á sviði nýtingu jarðvarma.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira