Réttlætismál að leiðrétta kjör ASÍ-félaga Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2014 20:05
Forseti Alþýðusambandsins sem var endurkjörinn á þingi þess í dag segir réttlætismál að almennt launafólk fái leiðréttingu sinna kjara í samræmi við það sem aðrir hópar hafi samið um. Verkalýðshreyfingin muni ekki fylgja stjórnvöldum á leið til aukinnar misskiptingar haldi stjórnvöld áfram á þeirri braut. Gylfi Arnbjörnsson fékk góða kosningu til áframhaldandi setu í stóli forseta Alþýðusambandsins á lokadegi þriggja daga þings sambandsins í dag. Hann hlaut 74,5 prósent atkvæða en mótframbjóðandinn Ragnar Þór Ingólfsson 25 prósent. Forseti Alþýðusambandsins hefur sagt að sú tilraun sem gerð var með kjarasamningum í fyrra hafi mistekist. Og því spurning hvort von sé á meiri hörku í samskiptum á vinnumarkaði þegar samningar losna með næsta vori? „Nú skulum við bíða með að leggja mat á það hvort til átakanna komi. En það er alveg klárt að krafa okkar er að okkar félagsmenn njóti sannmælis, njóti sambærilegra breytinga og aðrir hafa fengið. Og það er alveg klárt og það kemur fram á þessum fundi og ég hef fundið það á fundum mínum með stjórnum aðildarfélaga, að það er meiri vilji og skilningur á því meðal okkar félagsmanna að ef að til þarf verðum við að setja afl okkar að baki því að ná þessu fram. Vegna þess að þetta er réttlætismál,“ segir Gylfi. Menn hafi því svolítið verið að brýna hnífana á þessu þingi fyrir komandi samninga enda hafi misskiptingin í þjóðfélaginu verið að aukast. „Ég held að það sé nokkuð ljóst og það hefur komið fram í okkar ályktunum varðandi það upplegg sem er í fjárlagafrumvarpinu, að þeirri aðför sem er að kjörum okkar fólks og réttindum þar verður að linna. En að sama skapi þurfum við að setjast niður og móta þá einhverja sameiginlega sýn þessara aðila. Stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og tengja saman, ekki bara efnahagslegan stöðugleika og forsendur hans, heldur líka félagslegan stöðugleika,“ segir Gylfi. Þetta sé gerlegt en það kalli á vilja stjórnvalda til að hlusta á vilja félaga Alþýðusambandsins en innan þess eru félög um eitt hundrað þúsund karla og kvenna.Er þetta kjarkleysi eða skilningsleysi sem einkennir stjórnvöld? „Ég held að þetta séu bara mismunandi áherslur. Ég held að þetta sé ekki spurning um kjark. Þetta er spurning um að hafa skilning á því hvað þurfi til og vilja til að fara leið sem felur þá í sér meiri jöfnuð. Felur í sér að fólk fái að koma að mótun sinna kjara og hagsmuna. Ef viljinn væri þarna væri þetta alveg hægt. En ef stjórnvöld eru staðföst í því að að keyra áfram þessa leið sem er leið misskiptingar, er klárt að verkalýðshreyfingin er ekki til í það,“ segir Gylfi Arnbjörnsson ný endurkjörinn forseti ASÍ.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira