Svipaður fjöldi flúið Ísland og á vesturfaraárunum Heimir Már Pétursson skrifar 25. október 2014 20:01
Flótti fólks frá landinu á undanförnum fimm árum svarar til þess að allir íbúar Akraness og Grýtubakkahrepps hafi yfirgefið heimili sín og flutt til útlanda. Hins vegar slagar fjöldi útlendinga sem flutt hefur til landsins umfram brottflutta á undanförnum fórum árum upp í íbúafjölda Ísafjarðarbæjar. Á árunum 1879 til 1901 stóð yfir mikill landflótti Íslendinga til vesturheims en á þessu 23ja ára tímabili voru brottfluttir umfram aðflutta á Íslandi rétt um 9.500 manns, eða sem svaraði þá til um 12 prósenta þjóðarinnar, samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar. Þúsundir Íslendinga hafa lagt á flótta frá landinu frá því efnhagslíf landsins hrundi í lok árs 2008. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni hafa 9.100 Íslendingar flutt til útlanda frá byrjun árs 2009 til þriðja ársfjórðungs í ár, umfram þá sem flutt hafa heim. Þetta svarar til þess að allir íbúar Akranesbæjar og Grýtubakkahrepps hafi flutt af landi brott á undanförnum fimm árum. Flóttinn nær þó engan veginn sama hlutfalli og þegar Íslendingar flyktust vestur um haf, til þess hefðu rúmlega 38 þúsund Íslendingar þurft að flytja frá landinu umfram aðflutta, eða sem svarar til allra íbúa Kópvogs og Akraness til samans. En á undanförnum fimm árum hafa um 2,9 prósent Íslendinga flutt frá landinu umfram aðflutta, samanborið við 12 prósent á vesturfaraárunum eins og áður sagði. Miklar sveifur hafa verið á fjölda útlendinga sem flytja til og frá landinu. Margir þeirra fluttu aftur til heimlandsins, sérstaklega fjölmennasti hópurinn Pólverjar, árið eftir hrun. En ef miðað er við fjölgun útlendinga sem flutt hafa til landsins frá árinu 2010 umfram þá sem flutt hafa frá landninu, slagar sá fjöldi hátt í íbúafjölda Ísafjarðar þar sem um 3.500 manns búa. Í lok síðasta árs bjuggu 22.700 erlendir ríkisborgarar á Íslandi og voru því rétt um 7 prósent íbúa landsins.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira