Innlent

Hálka og hálkublettir víða um land

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vísir/Vilhelm
Hálka er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Auk þess eru hálkublettir á nokkrum öðrum vegum á Vesturlandi. Þá er víða hálka eða snjóþekja á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja og sumstaðar éljagangur. Þá er hálka eða snjóþekja einnig á flestum vegum á Austurlandi. Þungfært er á Breiðdalsheiði og Öxi en ekki verður mokað þar í dag.

Vegir á Suðurlandi og við Faxflóa eru svo að mestu auðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×