Innlent

Sýnist biskup hafa gleymt boðorðunum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata. Vísir/GVA
Orð Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands, í frétt RÚV frá því í gær um að það sé sorglegt að hér sé þörf á byssum hafa vakið mikla athygli. Á samfélagsmiðlum hefur fólk gert sér mat úr þessum orðum Agnesar og sagt hana vera ,,bysskup Íslands".

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir að sér sýnist á öllu að biskup hafi gleymt boðorðunum.

,,Ég er ekki í þjóðkirkjunni en þetta er samt sem áður ríkiskirkja sem þiggur fé frá skattborgurum. Mér finnst það því óviðeigandi að stofnun sem kennir sig við frið taki undir þessa þróun," segir Birgitta í samtali við Vísi.

Hún segir það jafnframt einfaldlega staðreynd að ofbeldi hafi ekki aukist hér heldur hefur það farið minnkandi, eins og víðast hvar á Vesturlöndum.

,,Ég hefði því haldið að friðarhöfðingi þjóðkirkjunnar hefði haft þveröfuga skoðun á þessari þróun og híft frekar upp þær staðreyndir að þetta sé ógnvænleg þróun. Það ber því að spyrna við henni frekar en að ýta undir hana,” segir Birgitta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×