,,Þess vegna þarf kirkjan að tala um kynlíf" Ólöf Skaftadóttir skrifar 26. október 2014 20:00 vísir/gva/pjetur ,,
Kristin kirkja hefur um aldir verið í vandræðum með að ræða um kynlíf og kynverund fólks og í þeim vandræðagangi kallast á annarsvegar tvíhyggju hugmyndir, þar sem veruleikin er aðgreindur í efni og anda, og hinsvegar karlægar hugmyndir feðraveldisins. Hin andlegi heimur í hefðbundinni framsetningu kirkjunnar er karlægur og dyggðum prýddur á meðan hinn efnislegi heimur er tengdur hinu kvenlega, líkamlega og lastafulla," segir meðal annars í pistli prestanna Sigurvin Lárusar Jónssonar og Sunnu Dóru Möller. Þessa helgina stendur yfir Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar sem er jafnframt stærsti árlegi viðburðurinn í kristilegu æskulýðstarfi. Í ár er mótið haldið á Hvammstanga og sækja það yfir 600 ungmenni á aldrinum 13-17 ára. Yfirskriftin í ár er JÁ! og vísar hún í umræðuefni mótsins en fjallað verður um kynhegðun og kynheilbrigði. Í fræðslunni, sem að koma Sigga Dögg kynfræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir sálfræðingur hjá Barnahúsi, verður meðal annars tekið á málum á borð við klámmenningu, kynferðisofbeldi og notkun getnaðarvarna. Safnað verður fyrir verkefni sem fellur undir alnæmisverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar sem stuðlar að forvörnum, aðhlynningu og stuðningi við alnæmissjúka og börn sem misst hafa foreldra af völdum sjúkdómsins. Í pistilinum segir jafnframt: ,,Umræða um kynlíf og kynheilbrigði við unglinga innan kirkjunnar skiptir höfuðmáli og tengist eðli þess erindis sem kirkjan á við manneskjur. Kirkjan boðar mannsmynd sem byggir á mannhelgi og kærleika og nálgast kynlíf á þeim forsendum að það sé heilög tjáning á jafningjatengslum. Í starfi kirkjunnar er þeirri mannsmynd haldið á lofti í skírninni, sem boðar að manneskjan sé heilög og megi ekki meiða, í fermingunni, þar sem unglingum er vísað veg elsku í stað ótta og í hjónavígslum, þar sem jafningjar mætast í ástarjátningu og gangast undir ástríka þjónustu hvert eða hvort við annað. Kirkjan hefur margvíslegum hlutverkum að gegna í heiminum og hún er í eðli sínu ekki eingöngu stofnun, heldur samfélag fólks sem lifir við margvíslegan veruleika. Þess vegna er það brýnt að ávarpa aðstæður fólks og fjalla um þann veruleika sem við búum við sem manneskjur. Kirkjunni er í raun ekkert mannlegt óviðkomandi. Kristin kirkjan hefur um aldir verið í vandræðum með að ræða um kynlíf og kynverund fólks og í þeim vandræðagangi kallast á annarsvegar tvíhyggju hugmyndir, þar sem veruleikin er aðgreindur í efni og anda, og hinsvegar karlægar hugmyndir feðraveldisins. Hin andlegi heimur í hefðbundinni framsetningu kirkjunnar er karlægur og dyggðum prýddur á meðan hinn efnislegi heimur er tengdur hinu kvenlega, líkamlega og lastafulla. Konur voru álitnar freistarar hinna staðföstu karlmanna og holdið bar að berja með boðum og bönnum. Þessi karlaveldisheimur er svo inngróinn í menningu okkar, samfélagsgerð og trúarhugmyndir að hann er útgangspunktur allrar umræðu og réttlætir það kerfisbunda ofbeldi sem okkur birtist til þessa dags í garð kvenna og hinsegin fólks. Þess vegna þarf kirkjan að tala um kynlíf. Það er staðreynd að kristin guðfræði er holdleg í eðli sínu og að Jesús Kristur birtist okkur sem manneskja af holdi og blóði. Holdtekningin er staðfesting á því að líkaminn er góður, að upplifun okkar af eigin líkama er jákvæð og að veruleikinn er óskiptur og rúmar alla, sama hvaðan þau koma eða hver þau eru. Það eru skilaboð kirkjunnar til ungs fólks og til allra, að við séum dýrmæt sköpun Guðs, að Guð kom í heiminn og gerðist hold til að skilja og skynja hvað það er að vera manneskja. Við tölum um kynlíf, líkama okkar og kynverund á opinberan og heiðarlegan hátt til vega á móti þeim skilaboðum sem dynja á ungu fólki um að verðgildi þeirra sé metið á grundvelli útlits eða kynferðislegar hlutgervingar. Það er ekki auðvelt að vera ung manneskja að stíga sín fyrstu skref í þessum veruleika og hér ber kirkjan ábyrgð í því hvernig hún nálgast umræðuna um líkamann og allt sem honum fylgir. Ef við forðumst umræðu eða berum á borð algild svör, gerum við meira ógagn en gagn og þá bregst kirkjan því erindi sem henni er falið af Jesú Kristi að reynast fólki skjól. Það þarf að afnema skömmina og kirkjan hefur tækifæri til að vera leiðandi í þeim efnum hafi hún nægilegt hugrekki til. JÁ! Kynlíf er okkur af Guði gefið til að tjá ást, gefa og þiggja, sem jafningjar og guðsbörn. Þessvegna á kristin kynlífssiðfræði erindi við manneskjur og getur samtímis umfaðmað ólík fjölskylduform og hafnað ofbeldisfullum birtingarmyndum kynhegðunar eða menningu sem gerir lítið úr manneskjum á grundvelli kynhegðunar."
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira