Æskilegt að styrkir miðist við landnýtingu til að auka verðmæti Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. október 2014 09:31
Afnema þarf beingreiðslur í landbúnaði til að draga úr sóun og ýta undir verðmætasköpun. Réttara væri að láta greiðslur fylgja ræktarlandi ef menn vilja styrkja landbúnaðinn á annað borð. Þetta segir Daði Már Kristófersson dósent í hagfræði. Daði Már hélt erindi á fundi Viðreisnar á dögunum þar sem hann fjallaði um landbúnaðarkerfið. Styrkir til mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar í formi beingreiðslna kosta skattgreiðendur samtals tæplega 8 milljarða króna árlega. „Mín skoðun er sú að bæði hvernig þetta kerfi er skipulagt, með beinum greiðslum sem eru framseljanlegar og líka það að einblína á svona fáar búgreinar, það torveldi landbúnaðinum að takast á við breytingar og geri það erfiðara fyrir hann að nýta þau tækifæri sem gætu verið í að breyta framleiðslu og sækja fram á nýjum sviðum,“ segir Daði Már. Daði Már segir beingreiðslurnar séu mjög óheppilegt fyrirkomulag og að landnotkun ætti fremur að stýra því hvort greiddur sé styrkur eða ekki. Þá myndi ríkið ekki skipta sér af því hvað bændur framleiða, en hvetja til ræktunar lands. Myndi styðja fjölbreyttan landbúnað „Þannig að sama hvaða framleiðsla byggði á þeirri landnýtingu þá fengi öll landnýting stuðning og líkurnar á því að það myndi eigngerast með sama hætti og beingreiðslurnar gera, þ.e. eingöngu koma fyrstu kynslóð til góða, eru litlar af því það er einfaldlega til svo mikið ónýtt land á Íslandi. Þetta myndi styðja unga bændur, þetta myndi styðja fjölbreyttan landbúnað, þetta myndi styðja landbúnað víðar um landið en núverandi kerfi gerir.“ Það er engum vafa undirorpið að það er ríkur vilji hjá almenningi að gera breytingar á landbúnaðarkerfinu. Í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 kemur til dæmis fram að 53 prósent aðspurðra vilja gera innflutning á landbúnaðarafurðum frjálsan. Til þess að gera breytingar á kerfinu þarf að vera pólitískur vilji til slíks hjá meirihluta löggjafans. Bæði núverandi ríkisstjórn og sú starfaði á undan henni stóðu vörð um landbúnaðarkerfið í óbreyttri mynd.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira