Norðurlöndin samræma markaðs- og kynningarstarf Heimir Már Pétursson skrifar 28. október 2014 12:20 Frá Norðurlandaþinginu í Stokkhólmi í morgun. Samstarfsráðherrar Norðurlandanna segja umheiminn sýna Norðurlöndum mikinn áhuga og ætla að nýta þann áhuga með samræmdum aðgerðum.
Norðurlöndin ætla sameiginlega að kynna og marka Norðurlöndunum stöðu á alþjóðavettvangi, samkvæmt nýrri áætlun sem samstarfsráðherrar landanna samþykktu á Norðurlandaráðsþingi í morgun. Norðurlandaráðsþing hófst í Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun og lýkur á fimmtudag. Samstarfsráðherrar ríkjanna kynntu nýja áætlun í morgun sem á að styrkja Norðurlöndin á alþjóðavettvangi. Í tilkynningu frá samstarfsráðherrunum segir að mikil forvitni og áhugi sé á Norðurlöndunum víðs vegar um heim og nái sá áhugi til margra sviða. Ráðherrarnir segjast þess fullvissir að Norðurlöndin geti á mörgum sviðum náð meiri árangri saman heldur en hvert um sig. Það nái einnig til þess að kynna og marka löndunum stöðu á heimsvísu. Þess vegna ætli ýmsir norrænir aðilar á næstu árum að koma skipulagi á vinnuna með því að efla samkeppnishæfni og áhrif landanna á alþjóðavettvangi. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra er samstarfsráðherra Íslands. Hún segir áhuga umheimsins á Norðurlöndunum ekki aðeins eiga við um bókmenntir, kvikmyndir og hönnun, heldur líka samfélagsgerð landanna og þau gildi sem hún byggi á. Skilningurinn sé sá að Norðurlöndin virðist hafa svörin við ýmsum af þeim spurningum sem verið sé að spyrja um allan heim einmitt núna. Til dæmis hvernig hægt sé að búa til opið samfélag sem geti þróast og haldið velli á erfiðum tímum. Eygló segir að ríkin eigi að nota þessa forvitni – bæði til að veita öðrum innblástur en jafnframt til að styrkja samfélög Norðurlandanna. Norræna ráðherranefndin á að samhæfa og samræma norrænt starf að kynningarmálum í samstarfi við opinbera aðila og einkaaðila. Grunnmarkmiðið er að efla samkeppnishæfni og alþjóðleg áhrif Norðurlanda og norrænu ríkjanna. Í áætluninni eru valin fimm svið sem á að kynna: norræna líkanið, Norðurlönd sem þekkingarsamfélög, norrænt hugarflug og nýsköpun ásamt náttúru og menningu Norðurlanda.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira