Telja prófið of þungt: „Er markmiðið að brjóta niður sjálfstraust nemenda?“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. október 2014 13:06 Það var almenn niðurstaða fundarmanna að enskuprófið hafi verið mun þyngra en samræmdu prófin í íslensku og stærðfræði.
Tungumálakennarar á Norðurlandi vestra gera alvarlegar athugasemdir við samræmda könnunarprófið í ensku haustið 2014 og telja kennararnir það hvorki hafa verið í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, né standist það grunnskólalög. Tungumálakennarar á Norðurlandi vestra hittust á Haustþingi KSNV, sem haldið var á Blönduósi þann 3. október sl. og fóru yfir prófið þar í sameiningu. Var það almenn niðurstaða fundarmanna að enskuprófið hafi verið mun þyngra en samræmdu prófin í íslensku og stærðfræði sem lögð voru fyrir 10. bekk í haust. Þetta kemur fram í ályktun frá kennurunum. Fram kemur í ályktuninni að á síðustu árum hafi samræmd próf í ensku byggst upp á fjórum lesköflum sem fara stigvaxandi að þyngd, ásamt fjölvalsspurningum um innihald kaflanna og málfræðiatriði. Síðasti kafli prófsins fjallaði um bandarískan kúreka að nafni Wes Miner og hætturnar sem steðja að nautgripum í hans umsjá. Í ályktunni fylgir textabrot úr prófinu en nemendur átti bæði að skilja og geta svarað krossaspurningum sem kennararnir telja hafa verið óþarflega tvíræðar. Hér að neðan má lesa textabrotið:…In high country like the Snowline Ranch where Miner works, temperatures can seesaw from 80°F to 8°F in a single day, and so pneumonia is a constant threat. It occupies Miner´s attention as he rides through the cattle. If some of them get caught in a downpour during cold weather, he´s fatally behind the curve. He must seize upon the earliest symptom: that lone calf amid the lurching sea of fur and fat with a single drooping ear, at which point Miner´s horse separates the calf from the others and the cowboy swings his long rope. Catch the calf with the first loop, reach for the meds in the saddlebag, inject the Nuflor. Done right, the calf barely notices, returns to the herd and by the end of October is 600 pounds and received by his owner with an approving half smile…Varmahlíðaskóli.mynd/vefsíða varmahlíðaskóla„Skoðum einnig brot af þeim orðaforða sem nemendur í lok 9. bekkjar eiga að þekkja samkvæmt prófshöfundum: ubiquitous (kemur tvisvar fyrir í texta og einu sinni í spurningu); accompaniment; sedentary; concocted/conconctions; solemnly; toppled; huddled; munches; sombereyed; lurching; postmodern/transmodern, artifact, arm-drag, ambitions, arrogance, anticipation, capability, concentration; simultaneous; scrawl, succumb; ploy; intrigued. Kannast aðrir enskukennarar við að hafa rekist á meirihluta þessara orða í þeim námsbókum sem kenndar eru í 9. bekk,“ segir í ályktunni. „Við hvaða hæfniviðmið, námskrár og/eða námsþætti miðuðu prófshöfundar við gerð þessa prófs? Hvert var markmiðið með prófinu? A) að greina milli þeirra nemenda sem hafa lesið sér sérlega mikið til gagns, ánægju og þroska OG hafa búið í enskumælandi landi frá þeim sem hafa sig varla í gegnum fimm fyrirsagnarlausa, stundum tvíræða texta með orðaforða alls enskunáms í grunnskóla; B) að brjóta niður sjálfstraust nemenda sem eiga við hvers kyns námsörðugleika að stríða, þó svo að þeir, samkvæmt 17. grein grunnskólalaga, eigi: ,,rétt á að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla án aðgreiningar, án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis“, eða:C) að kasta rýrð á enskukennslu í skólum landsins eða jafnvel á landsbyggðinni þar sem svæði eins og Norðurland vestra koma oftar en ekki illa út í samanburði við þéttbýlisskóla?" Kennararnir fara fram á svör við þessum spurningum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira