Innlent

Ingjaldur Hannibalsson látinn

Ingjaldur Hannibalsson.
Ingjaldur Hannibalsson. Vísir/GVA
Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Háskóla Íslands, varð bráðkvaddur á heimili sínu í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Hann var 62 ára gamall.

Ingjaldur fæddist þann 17. nóvember árið 1951. Foreldrar hans voru Hómlfríður Ingjaldsdóttir, kennari, og Hannibal Valdimarsson ráðherra.

Ingjaldur varð stúdent við Menntaskólann í Reykjavík árið 1971, lauk próf í eðlisfræði og stærðfræði frá Háskóla Íslands þremur árum síðar og doktorsprófi í iðnaðarverkfræði frá Ohio State University í Columbus.

Ingjaldur starfaði við Háskóla Íslands frá árinu 1978, fyrst sem stundakennari og dósent en varð prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild árið 1997. Þá sinnti hann fjölmörgum trúnaðarstörfum innan háskólans í gegnum tíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×