Innlent

Segir bankana firra sig allri ábyrgð á verðbólgunni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags-og viðskiptanefndar.
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags-og viðskiptanefndar. Vísir/Pjetur
Fyrir síðustu þingkosningar var kannski tvennt sem stóð upp úr þegar kom að kosningaloforðum Framsóknarmanna, annars vegar var það skuldaleiðréttingin og hins vegar afnám verðtryggingar.

Einhver breyting virðist þó hafa orðið á eftirspurn heimilanna þegar kemur að lánum því fólk leitar æ meira í verðtryggð lán á sama tíma og stefnt er að því að afnema verðtrygginguna.

Rætt var við Frosta Sigurjónsson, formann efnahags-og viðskiptanefndar Alþingis, í Reykjavík síðdegis í dag. Hann sagði að nafnvextir óverðtryggða lána hefðu ef til ekki alveg tekið tillit til þess að verðbólga hafi verið lág. Þau séu því hugsanlega hærri en þau ættu að vera. Þá sagði hann að ungt fólk sem sé að kaupa sína fyrstu íbúð taki frekar verðtryggt lán því það ráði frekar við afborganirnar af því fyrstu árin.

Aðspurður hvort hann væri enn á því að afnema ætti verðtryggingu sagði hann svo vera.

„Já, algjörlega. Það sem er að gerast núna þegar fólk er að taka verðtryggð lán er að bankarnir firra sig allri ábyrgð á verðbólgunni því þeir hafa minni og minni hag af því að gæta verðstöðugleika eftir því sem þeir eiga meira af verðtryggðum eignum. Þegar maður tekur verðtryggt lán í banka þá eignast bankinn verðtryggða eign sem er þetta skuldabréf. Bankar eru svo líka í þeirri stöðu að geta haft áhrif á verðbólguna með sinni peningamyndun og útlánastarfsemi,“ sagði Frosti.

Hann sagði það líka geta gerst, ef að það kæmi verðbólguskellur, þá væru bankarnir stikkfrí og myndu bara eignast meira í húsum fólks í staðinn.

„Það gerist alveg sjálfkrafa með verðtryggð lán en ef þetta eru óverðtryggð lán þá þurfa bankarnir að gæta sín á að hækka ekki vextina of mikið, þó að það komi verðbólguskellur, því þá getur fólk lent í vanskilum og það vilja bankarnir ekki. Bankarnir taka alltaf á sig hluta af skellinum þegar um nafnvexti er að ræða en það er ekki þannig þegar það eru verðtryggð lán. Þá eignast bankinn bara meira í húsinu þínu,“ sagði Frosti.

Nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×