Vilja skoða mögulegt sambandsríki Norðurlandanna Heimir Már Pétursson skrifar 28. október 2014 19:24 vísir/gva
Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna og Róbert Marshall þingflokksformaður Bjatrar framtíðar eru meðflutningsmenn á tillögu sem lögð var fyrir Norðurlandaráð í dag sem miðar að því að Norðurlöndin verði sambandsríki í náinni framtíð. Þeir Steingrímur og Róbert leggja tillöguna fram ásamt níu þingmönnum mið- og vinstriflokka á þingi Norðurlandaráðs. Tillagan byggir á hugmyndum sænska sagnfræðingsins Gunnars Wetterberg sem hefur mikla reynslu innan sænska stjórnkerfisins. En í árbók Norðurlandaráðs árið 2010 setti hann hugmyndir sínar fram um að Norðurlöndin gætu orðið sambandsríki á næstu 25 til 30 árum í anda Sviss og jafnvel með sameiginlegan gjaldmiðil. „Og það voru mjög margar fínar hugmyndir sem þar voru settar fram sem við sem flytjum þessa tillögu viljum vinna áfram með,“ segir Róbert. Sérfræðingahópur yrði skipaður til að útfæra þessarar hugmyndir og hvernig nánara og dýpra samstarf Norðurlandanna gæti litið út. „Þetta er náttúrlega töluverð framtíðarmússík en engu að síður eitthvað sem gæti verið mjög skemmtilegt að skoða frekar,“ segir Róbert. En þótt margt sé líkt með Norðurlöndunum eru líka stórir þættir sem skilja þau að eins og Evrópusambandsaðild Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands en Noregur og Ísland standa utan þess bandalags. „Þessi ríki hafa auðvitað verið að vinna mjög mikið saman. Við Íslendingar og Norðmenn höfum t.d. reitt okkur mjög mikið á hinar Norðurlandaþjóðirnar sem eru innan Evrópusambandsins þegar kemur að löggjöf. Löggjöf sem er væntanleg og er í smíðum og hefur áhrif á okkur,“ segir Róbert. Hann sér þó Norðurlöndin ekki fyrir sér með einni sambandsstjórn í framtíðinni. „Nei ég geri það í raun og veru ekki. Ég myndi vilja sjá fyrir mér þróun Norðurlandaráðs sem hefði öflugri tengingu við þjóðþingin,“ segir Róbert Marshall.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira