Takmarkaður skilningur þegar gerandi er kona Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. október 2014 21:01 "Einkennin eru dæmigerð en það virðist sem svo að það sé flóknara fyrir karla að rjúfa múrinn og leita sér aðstoðar.“ vísir/getty
Áætlað er að um sautján prósent barna á Íslandi hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur og að sjö prósent gerenda kynferðisofbeldis séu konur. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var af Hilmari Jóni Stefánssyni, meistaranema í félagsráðgjöf í Háskóla Íslands. Tekin voru viðtöl við fimm karlmenn á aldrinum 30-65 ára sem höfðu verið misnotaðir kynferðislega af konum í æsku. Mennirnir höfðu flestir verið á aldrinum 7-11 ára þegar brotin voru framin, einn þeirra var yngri. Rannsóknin leiddi það í ljós að enginn þeirra sagði frá kynferðisofbeldinu fyrir 18 ára aldur sökum sektarkenndar og skammar. Mikil vanlíðan varð þó til þess að þeir sögðu frá fyrir rest og fóru að vinna í afleiðingum ofbeldisins. Freydís Jóna Freysteinsdóttir, leiðbeinandi Hilmars í verkefninu og dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, segir að mennirnir hafi upplifað takmarkaðan skilning annarra á alvarleika ofbeldisins sökum þess að gerandinn var kona. „Einkennin eru dæmigerð en það virðist sem svo að það sé flóknara fyrir karla að rjúfa múrinn og leita sér aðstoðar. Það virtist vera erfitt fyrir mennina að líta á sig sem fórnarlömb og höfðu reynt að gera lítið úr afleiðingunum sem það kynferðislega ofbeldi sem þeir höfðu orðið fyrir hafði haft á þá. Þegar þeir loks sögðu frá ofbeldinu upplifðu þeir í fyrstu takmarkaðan stuðning og jafnvel hlutleysi eða að lítið væri gert úr ofbeldinu,“ segir Freydís í samtali við Vísi. „Þannig virtist vera um takmarkaðan skilning annarra að ræða á alvarleika þess ofbeldis sem þeir höfðu orðið fyrir af því að þeir voru drengir og gerandinn var kona. Þannig er valdamunur fyrir hendi þegar fullorðin kona misnotar aðstöðu sína gagnvart drengjum á barnsaldri,“ bætir hún við. Mennirnir greindu allir frá mikilli vanlíðan á fullorðinsaldri, til að mynda höfðu þeir upplifað þunglyndi, kvíða, félagsfælni, sjálfskaðandi hegðun, lélega sjálfsmynd og að þeir ættu í erfiðleikum með kynlíf og náin sambönd. Flestir þeirra þögðu langt fram á fullorðinsárin áður en þeir loks greindu frá ofbeldinu sem þeir höfðu orðið fyrir. Rannsóknin var unnin sem meistaraverkefni Hilmars sem kynnt verður á Þjóðarspeglinum í Háskóla Íslands næsta föstudag.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira