Segir Ísland enga femínistaparadís Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. október 2014 16:55 Frá Druslugöngunni síðastliðið sumar. Vísir/Andri Marinó
Annadís Greta Rúdólfsdóttir, stjórnandi Jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna við Háskóla Íslands, ritar grein í The Guardian í tilefni af nýrri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum, um jafnrétti kynjanna á heimsvísu. Eins og undanfarin ár er Ísland efst á lista ráðsins yfir þjóðir heimsins þegar mið er tekið af kynjajafnrétti en grein Önnudísar ber heitið Iceland is great for women but it‘s no feminist paradise. Það mætti þýða sem svo: Ísland er frábært fyrir konur en það er engin femínistaparadís. Annadís fjallar í greininni um stöðuna í jafnréttismálum á Íslandi í dag og dregur bæði fram hvar góður árangur hefur náðst en einnig hvar hægt er að gera betur. Hún minnist sérstaklega á baráttu kvenréttindahreyfingarinnar fyrir kynjakvótum á framboðslistum stjórnmálaflokka, sem hafi sannarlega haft sín áhrif á stjórnmálaþátttöku kvenna, gallinn sé hins vegar sá að kvótinn er ekki bundinn í lög. Það er því stjórnmálaflokkunum í sjálfsvald sett hvort þeir taki upp kynjakvóta eða ekki á framboðslistum og því geti þátttaka kvenna í stjórnmálum minnkað eftir því sem hið pólitíska landslag breytist. Þá segir Annadís það svo ekki koma á óvart að Ísland sé á toppnum þegar litið er til menntunar kvenna þar sem hér sé bæði ókeypis og gott menntakerfi. Hún minnir hins vegar á að enn sé mikill munur á því hvað konur og karlar velja að læra í háskóla; konur fari frekar í nám sem tengist umönnunarstörfum og karlar í nám tengt tæknigeiranum. Í greininni talar Annadís jafnframt um kynbundinn launamun sem enn sé viðvarandi í samfélaginu. Í lok greinarinnar bendir hún svo á að taka verði allri tölfræði með ákveðnum fyrirvara. Þrátt fyrir góðan árangur á Íslandi, og þrátt fyrir að vera númer eitt á lista Alþjóðaefnahagsráðsins, er ennþá margt sem má bæta.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira