Viðbragðsteymið enn ekki fullmannað 12. október 2014 18:57
Mikil hræðsla hefur gripið um sig eftir að heilbrigðisyfirvöld í Texas fullyrtu í dag að starfsmaður hefði smitast af Ebólu, en það er annað smitið sem upp kemur utan Vestur- Afríku. Ef ebólusmitaður einstaklingur kæmi hingað til lands væri Landspítalinn ekki undir það búinn, þar sem viðbragðsteymi vegna Ebólu er ekki orðið fullmannað. Viðbrögð alþjóðasamfélagsins duga hvergi nærri til að stemma stigu við útbreiðslu Ebólu og smituðum fjölgar nú hratt. Páll Matthíasson forstjóri Landspítala segir að lokaundirbúningur vegna viðbragðsáætlunar hér á landi sé nú í gangi, og að leit standi yfir af fólki sem er tilbúið að ganga til liðs við viðbragðsteymi vegna Ebólu. Um þrjátíu stöðugidi er að ræða. „Ég hef ekki upplýsingar um það núna um hvað sé búið að manna margar stöður. Það var hafist handa við þetta í síðustu viku og mér skilst að það gangi bærilega,“ segir Páll. Þannig að ef það kæmi ebólusmitaður einstaklingur hingað í næstu viku værum við ekki undirbúin?„Ef það kæmi ebólusmitaður sjúklingur hingað í dag þá myndi ég segja að við værum ekki undirbúin. Ég vona þó að ef að það gerðist í næstu viku verði áætlunin orðin þannig að það sé hægt að virkja hana með litlum sem engum fyrirvara,“ segir hann. Flest smit hafa orðið í Vestur- Afríkuríkjunum Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne, en flogið hefur verið með smitaða sjúklinga til fimm evrópuríkja og Bandaríkjanna. Í vikunni kom svo upp fyrsta smitið utan Vestur Afríku, þegar hjúkrunarfræðingur smitaðist á sjúkrahúsi í Madríd. Í dag bárust síðan fréttir af því að heilbrigðisstarfsmaður í Texas hefði smitast af veirunni. Miklar líkur eru því á að fleiri smit komi upp í þeim löndum sem tekið hafa á móti ebólusmituðum einstaklingum.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira