Fundaði með utanríkisráðherra Brasilíu Stefán Árni Pálsson skrifar 15. október 2014 12:01 Gunnar Bragi ásamt Figuereido, utanríkisráðherra Brasilíu.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti í gær fundi með Luiz Alberto Figuereido, utanríkisráðherra Brasilíu, og Neri Geller, landbúnaðarráðherra í Brasilia, höfuðborg Brasilíu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Með heimsókn sinni til Brasilíu fylgir Gunnar Bragi eftir samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að efla viðskiptaleg tengsl við þau svæði í heiminum þar sem mestur efnahagsvöxtur er. Á fundi Gunnars Braga með Figuereido ræddu utanríkisráðherrarnir viðskipti milli landanna og möguleika á að auka þau. Ræddu þeir möguleikann á að hefja fríverslunarviðræður milli EFTA-ríkjanna og MERCOSUR-viðskiptabandalagsins, sem Argentína, Brasilía, Paragvæ, Úrúgvæ og Venesúela eru aðilar að en bandalögin undirrituðu samstarfsyfirlýsingu árið 2000. Kvaðst Figuerido ætla að kalla saman sameiginlega nefnd EFTA og MERCOSUR þegar Brasilía tekur við formennsku í bandalaginu í byrjun næsta árs. Þá lýstu ráðherrarnir vilja til þess að klára loftferðarsamning milli landanna en fyrir liggur óstaðfestur samningur frá 2010 og ræddu einnig mögulegan fjárfestingasamning. Munu embættismenn fylgja hvorutveggja eftir. Figuereido, utanríkisráðherra Brasilíu, sagði að áhugavert væri að sjá samstarf milli Íslands og Brasilíu í nýtingu sjávaraflans. Íslensk sérþekking væri líkleg til þess að bæta við verðmæti afurðanna. Á fundi Gunnars Braga með Neri Geller landbúnaðarráðherra var einkum rætt um leiðir til að greiða fyrir útflutningi sjávarafurða til Brasilíu. Í því sambandi óskaði Gunnar Bragi eftir nánara samstarfi landanna um eftirlit með hollustuháttum og heilbrigði dýra, m.a. hvað varðar innflutning íslenskra sjávarafurða til Brasilíu og upplýsingagjöf þar að lútandi. Brasilíski raðherrann ítrekaði að þeir myndu finna lausn á vandamálinu. Þá ræddu ráðherrarnir um landgræðslumál og matvælaöryggi heimsins en á 30 árum hefur Brasilía farið frá því að vera innflytjandi matvæla í að vera stór útflytjandi. Voru ráðherrarnir sammála um að möguleikar fælust í samstarfi um landbúnaðar og landgræðslumál gegnum EMBRAPA, rannsóknarstofnun brasilíska landbúnaðarins og íslenskra gagnaðila.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira