Innlent

Framvísaði ökuskírteini bróður síns

Stefán Árni Pálsson skrifar
Maðurinn var ekki lengi að snara fram ökuskírteini.
Maðurinn var ekki lengi að snara fram ökuskírteini.
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærdag afskipti af ökumanni vegna gruns um að hann æki sviptur ökuréttindum.

Maðurinn var ekki lengi að snara fram ökuskírteini, en það reyndist við skoðun ekki vera hans skírteini heldur bróður hans.

Maðurinn stóð fastur á því að hann væri maðurinn á ökuskírteininu , þar til að hann viðurkenndi loks að vera sá sem hann er í raun. Hann var færður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla vegna brotanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×