Andvökunætur með hótunum og barsmíðum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. október 2014 11:18 Guðrún Bjarnadóttir. Vísir/Anton „
Fyrsta viðvörunarbjallan sem hringdi var þegar hann sagði mér að stinga sig ekki í bakið. Ég hafði auðvitað enga fyrirætlun um það og það skyldi ég sko sanna fyrir honum, sanna ást mína,“ segir leikkonan Guðrún Bjarnadóttir. Í opinskárri grein sem hún birtir á vef Kvennablaðsins skýrir hún frá því hvernig hún varð fyrir ítrekuðu ofbeldi af hálfu unnusta síns. Móðir hennar hefði sömuleiðis orðið fyrir ofbeldi af hendi stjúpföður Guðrúnar en það hefði leikkonan aldrei fattað. Ástæðan var sú að stjúpfaðirinn faldi barsmíðarnar vel. Guðrún segist hins vegar hafa áttað sig á því hverju á gekk mörgum árum síðar þegar hún stóð í sömu sporum. Guðrún fagnar því að hafa skilið við sitt fyrra líf. Hún hafi hitt fyrrum sambýlismann sinn úti á lífinu og heillast af honum. Hins vegar hafi hún fljótlega fengið slæma tilfinningu fyrir honum. Eftir að maðurinn flutti út til hennar þar sem hún var á lokanámi hríðversnaði ástandið. „Við tóku andvökunætur með hótunum og barsmíðum. Hótanir um líflát, hann gæti drepið mig þarna úti, skorið mig í bita og hent mér í ruslið án þess að nokkur yrði þess var,“ segir Guðrún í greininni. Hún hafi verið vöruð við af vinum og kennarar haft áhyggjur. Hún hafi íhugað að taka sitt eigið líf. „Mér var farið að líða eins og ruslinu sem hann talaði um að henda. Ég velti stundum fyrir mér á þessum tíma hvort ekki væri best að ég labbaði yfir stóru umferðargötuna og léti bílana taka mig í burt frá sársaukanum sem var innra með mér.“Guðrún telur að ákvörðunin um hvort ofbeldismaður sé kærður eigi ekki að hvíla á brotaþola.Vísir/AntonSór upp á son sinn Ofbeldið hélt áfram eftir að parið flutti til Íslands. Eitt kvöldið voru þau saman úti á lífinu og héldu heim saman með svörnu loforði upp á son hans að hann myndi ekki beit Guðrúnu ofbeldi. Hann stóð ekki við loforðið. „Hann lokaði mig inni í litlu herbergi, sagði mér að afklæðast og úthúðaði svo líkama mínum milli þess sem hann hellti á mig köldu vatni og kýldi mig. Hann hótaði að troða klósettbursta upp í klofið á mér.“ Maðurinn lokaði Guðrúnu inni í herbergi í fjórtán tíma, barði hana og niðurlægði. Hún hafi í kjölfarið sannfært hann um að þau þyrftu að fara út að nærast. Þá tókst henni að flýja upp í bíl skólasystur sinnar. Fór hún á bráðamóttöku og kærði í kjölfarið manninn. Hún segist þó ekki hafa verið nógu sterk til að halda kærunni til streitu. Guðrún tók við manninum að tveimur mánuðum liðnum eftir að hann fór í áfengis- og reiðimeðferð. Vermirinn var skammgóður því nokkrum mánuðum síðar byrjaði ofbeldið á ný.Ákvörðun um kæru ætti ekki að liggja hjá brotaþola „Hann réðst á mig aftur heima hjá okkur og ég hugsaði með mér, ég get ekki aðra svona nótt. Hann kýldi mig ítrekað og braut standlampa úr stáli á bakinu á mér. Ég var það heppin að við vorum nýkomin heim og var því með símann í vasanum.“ Guðrún náði að hringja í lögreglu sem mætti á svæðið. Frá 2008 eru liðin sex ár og segist Guðrún reikna með að eiga erfitt með að treysta karlmönnum á ný. Þó hafi hún nýverið kynnst yndislegum manni. „Mér líður vel í dag og get ekki verið annað en þakklát fyrir að vera á lífi, honum tókst að beygja mig en ekki buga, ég er sterkari eftir þessa lífsreynslu en óska engri manneskju að upplifa slíka hluti.“ Guðrún telur að ákvörðunin um hvort ofbeldismaður sé kærður eigi ekki að hvíla á brotaþola. Nóg sé á hann lagt fyrir. „Í mínu tilviki þá var ég ekki nógu sterk til að standa með þeirri ákvörðun, en hefði lögreglan spurt hvort ég yrði samvinnufús (sem er forsenda þess að mál nái fram að ganga) ef þeir kærðu, þá hefði ég klárlega sagt já. En að ég þyrfti að bera hitann og þunga af því, það var mér um megn.“Grein Guðrúnar í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Fleiri fréttir Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Árás á Íran, Háskóladagurinn og stórkostlegur endurkomusigur Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Frostlaust sums staðar sunnan heiða Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Vendingar í borginni, vandræði vegna verktaka og Pepsi-sátt Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Sjá meira