Félagsmenn ósáttir við aflýsingu verkfalls Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. október 2014 14:14 vísir/vilhelm
Starfsmannafélag Kópavogs hefur aflýst fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum sem hefjast áttu næstkomandi þriðjudag. Stjórnarfundur verður haldinn síðar í dag og annar fundur með trúnaðarmönnum í fyrramálið þar sem málið verður rætt. Ekki er ljóst hvort verkfalli sé alfarið aflýst eða hvort um frestun sé að ræða en formaður SFK vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Jófríður Hanna Sigfúsdóttur, formaður félagsins, sagði að greint yrði frá ástæðum frestunarinnar eftir fund með trúnaðarmönnum á morgun. Félagsfundur verður haldinn 13.október næstkomandi en efni fundarins vildi hún ekki tjá sig um. Hvort boðað verði til nýrrar atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir er því ekki ljóst. Félagsmenn SFK sem fréttastofa hefur rætt við í dag eru ósáttir við stöðu mála og upplýsingaleysi af hálfu félagsins. Þá hafa töluverðar umræður spunnist á Facebook síðu félagsins þar sem félagsmenn lýsa óánægju sinni. Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara í júlí síðastliðnum. Þá höfðu öll önnur bæjarstarfsmannafélög innan BSRB undirritað og samþykkt framlengingu á kjarasamningum en á það féllust félagsmenn SFK ekki. Jófríður sagði í samtali við Vísi í lok september að félagsmenn væru verulega óánægðir með laun sín og að „kraumandi óánægja“ ríkti undir niðri. Engin lausn væri í sjónmáli og að bærinn færi í lamasess kæmi til verkfalls. Tæplega 90 prósent félagsmanna samþykktu verkfallsaðgerðir dagana 14., 15., 21. og 22. október næstkomandi og allsherjarverkfall 1. nóvember. Af 710 manna úrtaki kusu 446 félagsmenn. Innlegg frá Starfsmannafélag Kópavogs - SfK.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira