Fótbolti

Platini: Ánægður með að hafa greitt Katar mitt atkvæði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Platini afhendir Cristiano Ronaldo verðlaun fyrir að vera besti knattspyrnumaður Evrópu.
Platini afhendir Cristiano Ronaldo verðlaun fyrir að vera besti knattspyrnumaður Evrópu. Vísir/Getty
Michel Platini, forseti UEFA, segir að það hafi verið rétt ákvörðun að kjósa Rússland og Katar til að halda HM í Katar 2018 og 2022.

Í viðtali við þýska blaðið Welt am Sonntag sagðist Platini hafa greitt bæði Rússlandi og Katar sitt atkvæði.

„Ég er fullkomlega ánægður að hafa greitt Katar mitt atkvæði. Það er eingöngu mín ákvörðun. Ég ákvað að velja lönd sem höfðu ekki haldið HM áður. Þetta var rétt ákvörðun með þróun fótboltans í huga,“ sagði Platini, en FIFA hefur legið undir mikilli gagnrýni vegna þessara ákvarðana.

Platini sagðist ennfremur vera mótfallinn hugmyndum Evrópusambandsins um að sniðganga HM í Rússlandi vegna aðkomu Rússa að átökunum í Úkraínu.

„Þegar við tölum um Rússlandi vil ég segja þetta: það er þýskt sendiráð þar, Lufthansa flýgur þangað. En Rússar mega ekki halda HM? Ég skil það ekki. Pólitíkusar leita alltaf að auðveldustu leiðinni.“

Platini, sem hefur gegnt embætti forseta UEFA frá árinu 2007, gaf það út á dögunum að hann myndi ekki bjóða sig fram gegn Sepp Blatter þegar kosið verður til forseta FIFA á næsta ári.

Platini skoraði 41 mark í 72 landsleikjum fyrir Frakka á árunum 1976-1987.


Tengdar fréttir

Geir: Held að menn ofmeti áhrif mín hjá UEFA

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir að hinn 78 ára gamli Sepp Blatter stýri FIFA til ársins 2019. UEFA mun ekki senda frambjóðanda gegn Blatter á næsta ári. Þó að Blatter sé umdeildur hefur hann hreðjatak á hreyfingunni.

Platini fer ekki fram gegn Blatter

Michel Platini, forseti UEFA (Evrópska knattspyrnusambandsins), mun ekki bjóða sig fram gegn sitjandi forseta FIFA, Sepp Blatter.

Blatter vill innleiða notkun myndbanda

Sepp Blatter, forseti FIFA, sagðist á Soccerex ráðstefnunni í Manchester vilja innleiða notkun myndbanda til að skera úr um réttmæti ákvarðana dómara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×