Íslendingur í farbann: 36 þúsund barnaklámsmyndir á tölvu sinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. ágúst 2014 16:17 Vísir
Hæstiréttur hefur staðfest farbann Héraðsdóms Reykjaness yfir Jóni Sverri Bragasyni, 59 ára gömlum dæmdum kynferðisbrotamanni. Jón Sverrir var stöðvaður í Leifsstöð við komuna til landsins 1. ágúst en tollgæslan hafði grun um að í fórum hans væri að finna barnaklám. Farbannið gildir til þriðjudagsins 16. september. Við leit í farangri Jóns Sverris fundust vísbendingar um barnaklám og lagði lögregla í kjölfarið hald á tvær Samsung-tölvur og sex minnislykla. Í farbannsbeiðninni að við skoðun á annarri tölvunni fundust um 36 þúsund ljósmyndir sem sýna unga drengi ýmist nakta eða á annan kynferðislegan hátt. Rannsókn stendur yfir en við hana hafi komið í ljós að myndbönd hafi verið vistuð bæði á tölvunum og minniskubbunum. Telji lögreglan að myndböndin hafi innihaldið kynferðisbrot gegn börnum. Vinnur lögregla að því að endurheimta myndböndin. Jón Sverrir er ekki búsettur á Íslandi og af þeim sökum telur lögregla að ætla megi að kærði gæti reynt að komast úr landi áður en rannsókn lögreglu ljúki. Af þeim sökum er óskað eftir farbanni. Á það féllst dómari bæði í héraði og nú í Hæstarétti.Braut gegn þroskaheftum drengÍ dómi Hæstaréttar í dag er minnt á að Jón Sverrir hafi þann 20. maí árið 2010 verið dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi. Um var að ræða kynferðisbrot gegn þroskaheftum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. „Jón Sverrir tældi piltinn til kynmaka með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans, reynsluleysi hans af kynlífi og tölvufíkn, en Jón greiddi drengnum fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum,“ segir í dómi Hæstaréttar frá 2010. Var Jóni Sverri veitt reynslulausn í desember 2012 eða þegar hann hafði setið inni í tvö og hálft ár. Hæstiréttur vísar í dómi sínum í dag til þess að úrskurða megi sakborning í farbann í stað gæsluvarðhalds sé fram komin rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing sé lögð við. „Ætla megi að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar.“ Hæstiréttur staðfestir því dóm Héraðsdóms Reykjaness um farbann til 16. september. Brot Jóns Sverris getur varðað allt að tveggja ára fangelsi samkvæmt 210. grein almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Tengdar fréttir Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur. 20. maí 2010 16:45 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira
Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur. 20. maí 2010 16:45