15 þúsund hafa skoðað orkusýningu í Búrfellsstöð Hrund Þórsdóttir skrifar 6. júlí 2014 22:04
Ef fjölskylduna vantar áhugaverðan viðkomustað í sumarfríinu er ekki úr vegi að koma við í Búrfellsstöð, en þar er að finna gagnvirka orkusýningu sem varpar ljósi á endurnýjanlega orkugjafa. Eftirspurn eftir endurnýjanlegum orkugjöfum fer vaxandi um allan heim og á sýningunni í Búrfellsstöð fá gestir innsýn í slíka orkuvinnslu og orkunotkun, og tækifæri til að velta fyrir sér hvernig framtíðin lítur út með tilliti til nýtingar vatnsafls, jarðvarma, vindorku og sjávarafla. Markmiðið er að komast í tengingu við almenning. „Og að opna dyrnar hérna hjá okkur, til að almenningur sjái hvað við erum að gera og ekki bara Landsvirkjun, heldur bara hvað raforkuframleiðslan gengur út á,“ segir Ingvar Hafsteinsson, stöðvarstjóri á Þjórsársvæði. „Hér getur fólk áttað sig á hvernig endurnýjanlegir orkugjafar eru, hvernig rafmagn verður til og hvað við erum að tala um þegar við tölum um samfélagsábyrgð. Þetta er hugsað bæði sem fræðsla og leikur.“ Sýningin er hönnuð af Gagarín og áhersla er lögð á gagnvirkni og upplifun. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði geta gestir til dæmis spreytt sig á að stýra vatnsaflsstöð, sem reynslan hefur sýnt að fullorðnir hafa ekki síður gaman af en börn, og skoða rafmagnsnotkun venjulegra heimilistækja á skemmtilegan hátt. Sýningin var opnuð í byrjun sumars árið 2011. „Frá opnun hafa komið hingað um 15 þúsund manns og aðsókn er að aukast,“ segir Ingvar. Sýningin er opin alla daga frá tíu til fimm í sumar og aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira