Yfir 500 prósenta fjölgun í erlendum gestum á Eistnaflugi 9. júlí 2014 13:22 Frá blíðunni á Neskaupstað. Mynd/Eistnaflug
Von er á allt tvö þúsund gestum á tónlistarhátíðina Eistnaflug sem hefst í Neskaupstað í kvöld. Rúmlega fjörutíu hljómsveitir koma fram. Þetta er í tíunda skipti sem hátíðin er haldin en boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Hátíðin hefst í Egilsbúð í kvöld en þar koma fram meðal annars Skálmöld og Brain Police. Stefán Magnússon, skipuleggjandi hátíðarinnar, á von á 1700 gestum en aðeins örfáir miðar eru eftir. Hann segir mætinguna undanfarin ár hafa verið mjög góða, a.m.k. síðustu þrjú árin eða eftir að hátíðin komst inn á fjölmiðlakortið. Mikil aukning sé í fjölda erlendra gesta í ár. „Það er fullt af erlendum gestum og rosalega aukning. Í fyrra voru kannski þrjátíu erlendir gestir. Í ár eru þeir í kringum 200 sem við vitum um,“ segir Stefán. Svarar það til rúmlega 500 prósenta fjölgunar á milli ára. En kemst allt þetta fólk fyrir í Neskaupstað? „Nei, ég get ekki sagt það. En það hjálpast bara allir að. Hver einasta dýna er notuð, öll heimahús og öll gisting sem er í boði.“ Sala á miðum er enn í boði eins og lesa má um nánar hér að neðan.Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjori í Fjarðabyggð.Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, segir mikla stemmningu fyrir hátíðinni. „Stemmningin er góð. Það er gaman að því hvað Stefán er að fá flott bönd hingað ár eftir ár. Metnaðarfull músík þótt sumt af þessu sé mjög þungt en hann er líka með það sem höfðar til margra,“ segir Páll. Nefnir hann til sögunnar Skálmöld og Retro Stefson auk þess sem boðið er upp á barna- og unglingatónleika. Þá nefnir hann að bæjarhátíðir fari fram í fimm af þeim sex fjörðum sem eru undir hatti Fjarðabyggðar sem hljóti að vera einstakt. „Það er gaman að segja frá því að hingað til hefur þetta gengið rosalega vel. Íbúar taka mikinn þátt í þessu og gestir ganga mjög vel um. Gott andrúmsloft þessa helgi,“ segir Páll Björgvin um hátíðina sem fór fyrst fram árið 2004. Íbúar keyri rokkarana til og frá og allir séu með. Post by Eistnaflug.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Sjá meira