Tengsl vændis við skipulagða glæpastarfsemi rannsökuð Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 9. júlí 2014 20:00
Vændi sem þrífst á Íslandi er nátengt mansali. Manseljendur eru íslenskir jafnt sem erlendir og hafa oft á tíðum tengsl við skipulagða glæpastarfsemi út í heimi sem og hér á landi. Aldrei hafa fleiri vændiskaupamál komið á borð ríkislögreglustjóra en á síðasta ári en þau voru samtals hundrað sjötíu og fimm árið tvö þúsund og þrettán. Rúmlega sjö sinnum fleiri en árið áður. Stór hluti vændis- og mansalsmála ratar þó aldrei á borð lögreglu, átakið á síðasta ári gefur því aðeins vísbendingu um umfang vandamálsins. Alþekkt er að fórnarlömb neita að viðurkenna eigin stöðu eða gera sér ekki grein fyrir henni. Þar að auki er þessi málaflokkur sérlega erfiður hvað rannsóknir varðar. Tengsl vændis og mansals á Ísland við skipulagða brotastarfsemi er umfjöllunarefni Heiðu Bjarkar Vignisdóttur en hún birti niðurstöður sínar í meistaraprófsritgerð sinni á dögunum. Niðurstaðan er sú að vændi þrífst á Íslandi, er tengt mansali og skipulagðri glæpastarfsemi. „Oft er það þannig. Innlend gengi, jafnt sem erlend — stundum í slagtogi. Konur er líka sendar hingað til lands í stuttan tíma á vegum samtaka og þá er yfirleitt íslenskir aðilar sem hafa eitthvað með að segja,“ segir Heiða Björk. Rannsókn Heiðu er byggð á lagarammanum, dómaframkvæmd, fræðiskrifum sérfræðinga og viðtölum við sérfræðinga á þessu sviði, þar á meðal réttarsálfræðinga, yfirmenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og aðila sem sinna málum fórnarlamba mansals og vændis. Rannsóknarniðurstöðurnar varpa ljósi á það að þeir sem stunda mansal eru íslenskir jafnt sem erlendir og hafa oft og tíðum tengsl við skipulögð brotasamtök erlendis sem og hérlendis. „Það er gríðarlegur bisness í þessari starfsemi. Þetta er ein ábótasamasta starfsemi skipulagðra glæpasamtaka, mansalið. Þá sérstaklega kynlífsþjónusta og það er algjörlega markaður fyrir slíka þjónustu á Íslandi, eins og rannsóknir hafa sýnt fram á.“ Aðeins tvisvar hefur dómur fallið í málum tengdum mansali. Fimm Litháar voru dæmdir í fimm ára fangelsi hver árið tvö þúsund og tíu í fyrsta máli sinnar tegundar á Íslandi. Í dómi Hæstaréttar segir að háttsemi mannanna hafi verið þaulskipulögð með einbeittum ásetningi í samstarfi við brotamenn erlendis. Heiða Björk segir að mikið af því vændi sem þrífst á Íslandi tengist mansali og skipulagðri brotastarfsemi. Konur séu sendar hingað ti lands til þess að leggja stund á vændi, oft gegn eigin vilja. Þær eru fluttar hingað, hýstar og hagnýttar í kynferðislegum tilgangi. „Það þarf að upplýsa fólk. Það þarf að upplýsa fólk um að það er vændi á Íslandi sem er í tengslum við mansal og það er auðvitað grafalvarlegt,“ segir Heiða Björk að lokum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira