Fjölskyldubíllinn fannst í runna Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. júní 2014 16:55 Bíllinn fannst í trjárjóðri við Víðisstaðatún í Hafnarfirði.
Bíll Atla Erlingssonar sem stolið var síðastliðinn þriðjudag er kominn í leitirnar. Bíllinn fannst í trjárjóðri við Víðisstaðatún í Hafnarfirði, skammt frá heimili Atla í dag en bílnum var stolið þaðan. Að sögn Atla þarfnast bíllinn töluverðra viðgerða og er hann ansi skemmdur eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. „Bílnum hefur verið keyrt í gegnum skóginn. Hann er allur dældaður og beyglaður og það þarf að láta sprauta hann. Ég er í kaskó en þetta kemur til með að kosta um 70-80 þúsund krónur,“ segir Atli. Hann segir engu hafa verið stolið úr bílnum en í bílnum fundust sólgleraugu og ýmsir aðrir hlutir.Bíllinn er töluvert skemmdur.Þegar Atli ætlaði að skutla dóttur sinni á fimleikanámskeið síðastliðinn þriðjudag rann upp fyrir honum að fjölskyldubíllinn, Nissan Patrol jeppi, var ekki lengur á planinu fyrir utan heimili hans. Atli gerði lögreglu samstundis viðvart og barst lögreglu ábending í dag um að bílinn væri að finna við Víðisstaðatún, fyrir aftan skólagarða. Hann segir upplifunina, að sjá bíl sinn ekki í stæðinu fyrir utan heimili hans, hafa verið hrikalega en er ánægður með að bíllinn sé kominn í leitirnar. „Þetta er bara æðislegt. Ég er ofboðslega ánægður með að bíllinn sé kominn aftur, þrátt fyrir allt saman,“ segir Atli að lokum.
Tengdar fréttir Fjölskyldubílnum stolið: "Ömurleg upplifun“ Þegar Atli Erlingsson ætlaði að skutla dóttur sinni á fimleikanámskeið í morgun rann upp fyrir honum að fjölskyldubíllinn, Nissan Patrol jeppi, var ekki lengur á planinu fyrir utan heimili hans. 24. júní 2014 17:30 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira
Fjölskyldubílnum stolið: "Ömurleg upplifun“ Þegar Atli Erlingsson ætlaði að skutla dóttur sinni á fimleikanámskeið í morgun rann upp fyrir honum að fjölskyldubíllinn, Nissan Patrol jeppi, var ekki lengur á planinu fyrir utan heimili hans. 24. júní 2014 17:30