Útlendingar aldrei séð aðra eins vegi Kristján Már Unnarsson skrifar 28. júní 2014 19:45 Steinunn Hjartardóttir og Soffía Haraldsdóttir, eigendur Hótels Flókalundar. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Vondir vegir koma í veg fyrir að unnt sé að byggja upp heilsársferðaþjónustu á Vestfjörðum, segja eigendur Hótels Flókalundar, sem aðeins hafa opið yfir sumartímann. Upphaflega var það Barðstrendingafélagið sem byggði upp Hótel Flókalund á þessum hlýlega stað í friðlandi Vatnsfjarðar. Flókalundur byrjaði sem veitingastaður fyrir hálfri öld. Fyrir um fjörutíu árum komu fyrstu gistiherbergin en þetta hefur samt eingöngu verið ætíð sumarrekstur. Undanfarin fimmtán ár hafa tvenn hjón rekið Flókalund, þær Steinunn Hjartardóttir og Soffía Haraldsdóttir, ásamt eiginmönnum sínum, Sævari Pálssyni og Ólafi Haraldssyni, en rætt var við þær í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Í vor var opnað 16. maí og í haust verður lokað 20. september. „Meðan við höfum ekki heilsársamgöngur er mjög erfitt að vera með heilsársrekstur,” segir Soffía Haraldsdóttir.Iðulega er ekki hægt að opna heiðarnar fyrr en komið er fram á vor, eins og þegar þessi mynd var tekin af snjómokstri á Dynjandisheiði í maímánuði árið 1995.Mynd/Stöð 2.„Og þó að verið sé að moka er ekki alltaf hægt að stóla á að það sé fært. Þannig að það er ekki grundvöllur fyrir því, allavega ekki ennþá,” segir Soffía. Flókalundur er umgirtur vondum vegum, norðan við eru Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði, sem ófærar eru mánuðum saman yfir veturinn, og austan við er hinir alræmdu Ódrjúgsháls og Hjallaháls ásamt löngum malarköflum. „Við eigum nú von á bótum núna í sumar. Þannig að þetta er allt í áttina,” segir Steinunn Hjartardóttir og vísar til vegagerðarinnar sem nú stendur yfir í Kjálkafirði og Kerlingarfirði.Brúin yfir Kjálkafjörð verður opnuð síðar í sumar.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.„En þetta hefur óhjákvæmilega áhrif. Það eru margir sem veigra sér við að keyra eftir þessum gömlu malarvegum. Þó að okkur finnist þeir ágætir frá degi til dags þá er fólk bara í dag orðið óvant að keyra eftir þessum vegum. Útlendingar til dæmis hafa bara aldrei séð annað eins,” segir Soffía. Flókalundur hefur þó notið vaxandi ferðamannastraums og heitur pottur í fjöruklettum er meðal þess sem heillar. Eigendur Flókalundar eru því farnir að huga að stækkun og áforma að bæta við 10 herbergjum og stækka veitingasalinn. Þær segja að útlendingar séu 95 prósent gesta hótelsins. Íslendingar séu hins vegar aðalviðskiptavinirnir á tjaldstæðinu.
Tengdar fréttir Ákall til Alþingis um Dýrafjarðargöng Vestfirðingar safna nú undirskriftum undir ákall til stjórnvalda um að Dýrafjarðargöng fái forgang og fram fyrir Vaðlaheiðargöng og Norðfjarðargöng. Bíll komst yfir Hrafnseyrarheiði í dag í fyrsta sinn í fjóra mánuði. Ákall um Dýrafjarðargöng er yfirskriftin sem lýsir vel hve heitt samgöngumálin brenna á Vestfirðingum. 17. apríl 2012 19:15 Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu. 25. júní 2014 20:00 Megintenging innan Vestfjarða ófær í fjóra mánuði Vegagerðin hefur frestað því að opna Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en þær hafa báðar verið meira og minna lokaðar undanfarna fjóra mánuði. Ráðamenn á Vestfjörðum segja ástand vegamála þar ömurlegt. Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði eru á miðhluta Vestfjarða en þær hafa verið meira og minna verið lokaðar frá því í nóvember og alfarið frá 12. desember. 21. mars 2012 12:29 Fiskeldismenn kalla eftir vegabótum á Vestfjörðum Milljarðauppbygging fiskeldis á Vestfjörðum kallar á stórfelldar vegabætur strax, segir framkvæmdastjóri Arnarlax. Vegirnir á Vestfjörðum séu einfaldlega ónýtir. Norskt fiskeldis- og matvinnslufyrirtæki er að flytja alla starfsemi sína frá Norður-Noregi til sunnaverðra Vestfjarða og hyggst byggja þar seiðaeldisstöð, laxasláturhús og fiskréttaverksmiðju í nafni Arnarlax. Náttúrulegar aðstæður í Arnarfirði þykja ákjósanlegar en annað gildir um innviði eins og vegi sem ráðamenn félagsins segja að verði að bæta. "Þetta er mjög einfalt mál. Vegirnir eru ónýtir. 16. mars 2013 21:23 Þúsund kílómetra bíltúr til að heimsækja nágranna á Vestfjörðum Formaður bæjarráðs Ísafjarðar segir ástand samgöngumála á Vestfjörðum ömurlegt og ríkisstjórnin geti ekki skýlt sér á bak við hrunið þegar loforð um úrbætur séu svikin. Hann nefnir dæmi um starfsmenn fiskeldisstöðvar sem þurfa að aka yfir þúsund kílómetra milli tveggja fjarða þótt aðeins þrjátíu kílómetra loftlína sé þar á milli. 29. febrúar 2012 18:45 Brú yfir Kjálkafjörð opnuð fyrir verslunarmannahelgi Einn vestfirsku fjarðanna, Kjálkafjörður, er að lokast þessa dagana með vegfyllingu, og það var rétt eins og opnað væri fyrir flóðgátt þegar sjónum var í fyrsta sinn hleypt undir nýju brúna yfir fjörðinn. 12. júní 2014 20:15 Flýgur til Reykjavíkur til að komast milli byggða á Vestfjörðum Hvernig ætli Reykvíkingum þætti það ef þeir kæmust ekki til Suðurlands nema aka fyrst norður til Blönduóss og þaðan suður yfir Kjöl? Þetta er sú staða sem uppi er á Vestfjörðum 17. mars 2014 22:31 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Ákall til Alþingis um Dýrafjarðargöng Vestfirðingar safna nú undirskriftum undir ákall til stjórnvalda um að Dýrafjarðargöng fái forgang og fram fyrir Vaðlaheiðargöng og Norðfjarðargöng. Bíll komst yfir Hrafnseyrarheiði í dag í fyrsta sinn í fjóra mánuði. Ákall um Dýrafjarðargöng er yfirskriftin sem lýsir vel hve heitt samgöngumálin brenna á Vestfirðingum. 17. apríl 2012 19:15
Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu. 25. júní 2014 20:00
Megintenging innan Vestfjarða ófær í fjóra mánuði Vegagerðin hefur frestað því að opna Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en þær hafa báðar verið meira og minna lokaðar undanfarna fjóra mánuði. Ráðamenn á Vestfjörðum segja ástand vegamála þar ömurlegt. Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði eru á miðhluta Vestfjarða en þær hafa verið meira og minna verið lokaðar frá því í nóvember og alfarið frá 12. desember. 21. mars 2012 12:29
Fiskeldismenn kalla eftir vegabótum á Vestfjörðum Milljarðauppbygging fiskeldis á Vestfjörðum kallar á stórfelldar vegabætur strax, segir framkvæmdastjóri Arnarlax. Vegirnir á Vestfjörðum séu einfaldlega ónýtir. Norskt fiskeldis- og matvinnslufyrirtæki er að flytja alla starfsemi sína frá Norður-Noregi til sunnaverðra Vestfjarða og hyggst byggja þar seiðaeldisstöð, laxasláturhús og fiskréttaverksmiðju í nafni Arnarlax. Náttúrulegar aðstæður í Arnarfirði þykja ákjósanlegar en annað gildir um innviði eins og vegi sem ráðamenn félagsins segja að verði að bæta. "Þetta er mjög einfalt mál. Vegirnir eru ónýtir. 16. mars 2013 21:23
Þúsund kílómetra bíltúr til að heimsækja nágranna á Vestfjörðum Formaður bæjarráðs Ísafjarðar segir ástand samgöngumála á Vestfjörðum ömurlegt og ríkisstjórnin geti ekki skýlt sér á bak við hrunið þegar loforð um úrbætur séu svikin. Hann nefnir dæmi um starfsmenn fiskeldisstöðvar sem þurfa að aka yfir þúsund kílómetra milli tveggja fjarða þótt aðeins þrjátíu kílómetra loftlína sé þar á milli. 29. febrúar 2012 18:45
Brú yfir Kjálkafjörð opnuð fyrir verslunarmannahelgi Einn vestfirsku fjarðanna, Kjálkafjörður, er að lokast þessa dagana með vegfyllingu, og það var rétt eins og opnað væri fyrir flóðgátt þegar sjónum var í fyrsta sinn hleypt undir nýju brúna yfir fjörðinn. 12. júní 2014 20:15
Flýgur til Reykjavíkur til að komast milli byggða á Vestfjörðum Hvernig ætli Reykvíkingum þætti það ef þeir kæmust ekki til Suðurlands nema aka fyrst norður til Blönduóss og þaðan suður yfir Kjöl? Þetta er sú staða sem uppi er á Vestfjörðum 17. mars 2014 22:31