Innlent

„Tek á málinu þegar niðurstaða liggur fyrir“

Hjörtur Hjartarson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra vill ekki tjá sig um efnisatriði lekamálsins fyrr en rannsókn lögreglu og ríkissaksóknara lýkur. 

Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir þá ákvörðun hinsvegar og segist um leið farin að efast um sannsögli innanríkisráðherra í málinu.

„Ég hef nú hingað til reynt að forðast að saka innanríkisráðherra um að hafa ekki greint rétt frá en ef hún heldur svona áfram fer maður auðvitað að efast um hvað er satt og rétt af því sem sagt hefur verið í þessu leiðindamáli,“ segir Valgerður.

Fram kemur í úrskurði Hæstaréttar frá á mánudaginn að lögreglan gruni ákveðinn starfsmann innanríkisráðuneytisins um að bera ábyrgð á því að minnisblaðið komst í hendur fjölmiðla. Valgerður vill fá svör við því hver þessi starfsmaður er.

„Já, ég vil fá svör við því,“ segir Valgerður. „Mér finndist nú rétt gagnvart öðrum starfsmönnum ráðuneytisins að sá sem liggur undir þessum rökstudda grun, að sú manneskja gefi sig fram.“

Innanríkisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem fram kemur að ráðherra geti ekki tjáð sig um efnisatriði málsins á meðan rannsókn lögreglu og ríkissaksóknar stendur enn yfir.

„Ég tel mikilvægt að málið fái að klárast. Ég vona innilega að það fari að gerast svo við getum farið að taka á því og það munum við gerast þegar niðurstaða liggur fyrir,“ segir Hanna Birna.

Þangað til verði yfirlýsing um málið sem birtist á vef innanríkisráðuneytisins í dag að duga.

„Já, menn verð að skilja það og ég held að almenningur átti sig á því. Það er ekki eðlilegt eða æskilegt að ráðherra sé að blanda sér inn í rannsóknir á meðan þær standa yfir. Ég bið menn um að virða það. Við getum ekki útskýrt hvernig þetta hefur allt saman þróast, lögreglan verður sjálf að útskýra það. Þannig að það er ekki eðlilegt að ráðherra tjái sig um málið fyrr en niðurstaða liggur fyrir og það fer vonandi að skýrast,“ segir Hanna Birna.


Tengdar fréttir

Krefjast þess að Hanna Birna segi af sér

Ungir jafnaðarmenn samþykktu í dag ályktun af miðstjórn um að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, eigi að segja af sér ráðherraembætti.

Einkamál útlendinga birt án skýrra heimilda

Innanríkisráðuneytið hefur hafið birtingu á úrskurðum sínum um málefni útlendinga. Ekki er skýr lagaheimild fyrir birtingunni og viðkvæmar persónuupplýsingar birtast þrátt fyrir að nafnleyndar sé gætt. Persónuvernd vill að vandað sé til verka.

Tony Omos stefnir íslenska ríkinu

Fyrirtöku í máli hælisleitandans Tony Omos um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurði innanríkisráðuneytisins um synjun á hæli hér á landi var frestað í morgun.

Lekamálið ljótur pólitiskur leikur að mati Hönnu Birnu

Hart var sótt að innanríkisráðherra á þinginu nú rétt í þessu vegna lekamálsins svokallaða. Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar að tjá sig um það síðar en gaf í skyn að það snérist um aðför að sér.

Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×