Innlent

Nýr meirihluti í Hafnarfirði kynntur á þriðjudag

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Bjartar framtíðar verður kynntur á þriðjudag. Nýr bæjarstjóri verður faglega ráðinn og nú þegar sýna margir starfinu áhuga.

Það bendir allt til þess að 27 þúsund íbúar Hafnarfjarðar séu komnir með nýjan meirihluta. Forystumenn Bjartar framtíðar og Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði komu saman í Hafnarborg í dag og héldu þar áfram vinnu að málefnasamningi.

Í gær sendu bæjarfulltúar flokkana frá sér tilkynningu þar sem fram kom að samkomulag hefði náðst um meirihlutamyndun og verkaskiptinu. Guðlaug Kristjánsdóttir hjá Bjartri framtíð verður forseti bæjarstjórnar og Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs. Oddvitar flokkana vildu lítið tjá sig um viðræðurnar við fréttamenn en sögðu þó:

„Viðræðurnar hafa gengið ljómandi vel. Við erum að ganga frá lausum endum og vonumst til að geta kynnt málefnasamning og okkar áherslur, vonandi á þriðjudag,“ segir Rósa. Guðlaug tekur í svipaðan streng. „Þetta hefur verið á mjög jákvæðum nótum. Ef þetta gengur að óskum þá klárum við á morgun eða á þriðjudag. Þangað til þá erum við að gera okkar besta og vanda okkur,“ segir Guðlaug.

Áhugi á bæjarstjórastöðunni

Guðlaug sagði í samtali við fréttamenn í dag að mikil áhersla hefði verið lögð á það að ráða ópólitískan bæjarstjóra í Hafnarfirði. Margir áttu von á því að Rósa myndi falast eftir bæjarstjórasætinu eftir góðan kosningasigur Sjálfstæðisflokksins en tók fram að svo væri ekki. Guðlaug segir að nú þegar hafi fjölmargir lýst yfir áhuga á því að gegna embætti bæjarstjóra í Hafnafirði og að ráðningastofur hafi haft samband við forystumenn verðandi meirihluta.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm bæjarfulltrúa kjörna í nýafstöðnum kosningum og Björt framtíð tvo. Saman mynda flokkarnir sterkan meirihluta en alls sitja 11 bæjarfulltrúar í Hafnarfirði. Fráfarandi meirihluti Samfylkingar og Vinstri grænna féll í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×