Maður grunaður um manndráp framseldur til Litháens Bjarki Ármannsson skrifar 22. maí 2014 13:43 Maðurinn segist óttast glæpagengi í heimalandi sínu. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því 6. maí um framsal manns til Litháen. Úrskurður Héraðsdóms var staðfesting ákvörðunar innanríkisráðuneytisins frá því 28. febrúar. Framsalsbeiðni litháískra dómsmálayfirvalda barst ráðuneytinu í nóvember síðastliðnum en maðurinn, sem er litháískur ríkisborgari, er grunaður um manndráp í heimalandi sínu, að þvi er kemur fram í málsgögnum. Á hann að hafa ásamt hópi annarra manna ráðist með vopnum og ofbeldi að manni sem þeir töldu sig eiga sókött við og samverkamenn þess grunaða skotið manninn með loftbyssum og skambyssu. Átti verknaðurinn sér stað þann 5. Janúar 2009 en sá særði lést nokkrum dögum síðar. Í beiðni litháískra yfirvalda segir að maðurinn hafi brotið farbann og tilkynningarskyldu sem hann sætti vegna málsins og að handtökuskipun hafi verið gefin út í júlí 2010. Maðurinn sagðist fyrir rétti hafa rofið farbannið og komið til Íslands af ótta við meðlimi glæpahóps. Hann hélt því jafnframt fram að ástæða sé til að óttast um líf hans og heilsu, verði hann framseldur og þurfi að dveljast í litháísku fangelsi. Hann óttist ofsóknir og barsmíðar af hálfu glæpagengisins, sem hafi í tvígang gengið í skrokk á honum og hótað systur hans.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira