Óttast að staða barna geti haft áhrif á málsmeðferð Stefán Árni Pálsson skrifar 22. maí 2014 23:48 Íris Stefánsdóttir. mynd/skjáskot af vef RÚV.
Móðir stúlku sem Birkir Már Ingimarsson beitti ofbeldi segist oft hafa reynt að fá yfirvöld til að flýta máli dóttur sinnar en hún telur að það geti haft áhrif á framgang mála ef börn eru í neyslu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV. Birkir var dæmdur í tveggja ára og níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag fyrir að hafa brotið gegn þremur börnum árið 2010. Ákæran á hendur manninum var í sjö liðum og játaði hann sök í fimm en héraðsdómur sakfelldi hann fyrir tvo. Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi átt sér engar aðrar málsbætur en játanir sínar. „Þegar ég hringdi í lögreglu var í raun alltaf verið að skoða eitthvað eða þá að þetta hefði jafnvel verið bara ofan í skúffu og engin skýr svör af hverju þetta var ekki farið lengra," segir Íris Stefánsdóttir, móðir stúlku sem Birkir var dæmdur fyrir að níðast á, í samtali við fréttastofu RÚV. Íris sagði ennfremur að þegar hún hringdi í saksóknara þá var henni ávallt tjáð að málið væri ofarlega á bunka og alveg að fara fyrir dóm. „Vitandi það að maður getur ekkert gert, reynir maður að ýta þessu frá sér. Dóttir mín er að fást við áfallastreituröskun, kvíðaröskun, þunglyndi, og hefur þurft að takast á við afleiðingar þessa ofbeldis, en líka að takast á við það að þetta sé að velkjast um í kerfinu og engin úrlausn og hangandi yfir okkur í fjögur ár." „Miðað við þau mál sem maður hefur fylgst með í fjölmiðlum, og af þeim málum sem eru að taka svona ofboðslega langan tíma og sérsaklega núna undanfarið þar sem er verið að dæma í málum frá árunum 2010 og 11, þá virðast þolendur málanna alls staðar hafa verið í neyslu," segir Íris.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira