Nemar á Norðurlöndum ekki á kjörskrá: "Þurfa að skoða rétt sinn“ Sveinn Arnarsson skrifar 23. maí 2014 13:00 Einhverjir námsmenn á Norðurlöndunum eru dottnir af kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum.
Upp hafa komið tilvik þar sem námsmenn búsettir á Norðurlöndum og með lögheimili þar séu ekki á kjörskrá sinna sveitarfélaga til sveitarstjórnarkosninga. Grétar Ævarsson, nemi í Noregi, hafði samband við Visi vegna þessa. Hann færði lögheimili sitt til Noregs á grundvelli samninga Norðurlandanna um almannaskráningu. Með réttu ætti hann að vera á kjörskrá í Reykjavík en gat ekki fundið sig þar þegar hann leitaði eftir kennitölu sinni á kosningavef Innanríkisráðuneytisins. „Ég vil að allir nýti kosningarétt sinn og ég vona að allir námsmenn á Norðurlöndunum kynni sér það hvort þeir eru á kjörskrá," segir Grétar. „Það er bagalegt ef fjöldi nema á Norðurlöndunum er ekki á kjörskrá vegna þessa."Á vef Innanríkisráðuneytisins er skýrt kveðið á um hverjir geti kosið í sveitarstjórnarkosningum. Þar kemur fram að allir þeir nemar á Norðurlöndunum sem skráð hafa lögheimili sitt þar vegna samnings Norðurlandanan um almannaskráningu eigi rétt á að kjósa. þar segir:Kosningarétt við sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí 2014 eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014. Eina undantekningin frá þessu eru íslenskir námsmenn á hinum Norðurlöndunum sem þurft hafa að skrá lögheimili sitt þar samkvæmt ákvæðum samnings Norðurlandanna um almannaskráningu. Þeir glata ekki kosningarétti sínum í sveitarstjórnarkosningum vegna þess. Ástríður Jóhannesdóttir, deildarstjóri lögfræðideildar Þjóðskrársviðs segir að það geta komið upp tilvik sem þessi. „Það eru dæmi um það að einstaklingar í námi erlendis og uppfylla skilyrði um að geta kosið séu ekki í kjörskrárstofni. Við höfum ekki tölur um hversu margir geta verið í þessum sporum. Þeirra er þá að koma viðeigandi gögnum til sinna sveitarfélaga þess efnis að þeir séu í námi og eigi þar að leiðandi rétt á að vera á kjörskrá til sveitarstjórnarkosninga.“
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira