Langur biðtími ýti undir neikvæðni, reiði og hatur Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. maí 2014 22:02 „Menn sem hafa nauðgað og sitja inni á meðan rannsóknin gengur yfir og þeim er svo sleppt út til að bíða eftir dómnum. Þá er nauðgað aftur. Þetta eru dæmi úr okkar samfélagi.“ „
Tíminn fá afbroti að dómi er allt, alltof langur. Það sem gerist, sérstaklega með ungt fólk, ef orsök og afleiðing haldast ekki í hendur þá snýst þetta bara í þversögn sína.“ Þetta segir Guðmundur Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni í viðtali í þættinum Reykjavík síðdegis. Mál Einars Arnar Adolfssonar og Finns Snæs Guðjónssonar vöktu töluverða athygli í síðustu viku, en þeir voru dæmdir í sex ára fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á ríflega þrjátíu þúsund e-töflum í ágúst 2011. Einar Örn var tæplega átján ára þegar brotin voru framin. Einar Örn sneri við blaðinu og er kominn á beinu brautina í lífinu. Hann reiknaði alltaf með því að þurfa sitja inni í einhvern tíma en vonaðist til að það yrði metið til refsilækkunar hversu vel hann hafi tekið til í lífi sínu. Það var hinsvegar ekki svo. Mummi telur langan biðtíma á milli dóms og afbrota ýta undir neikvæðni, reiði og hatur einstaklinga gegn kerfinu. Líf fólks sé sett á bið á meðan þessu stendur og því sé þeim ókleift að snúa við blaðinu. „Fjölskyldur sundrast á þessum tíma og alls konar sem gerist. Þú getur ekki ráðið þig í vinnu og þó þú ætlir að snúa blaðinu við þá hangir þetta yfir þér eins og krabbamein.“ Eins og áður segir eru rétt tæplega þrjú ár síðan Einar var handtekinn. Þær tafir sem hafa orðið á meðferð málsins eru ekki útskýrðar með öðrum hætti en þessum í dómnum: "Dómsuppsaga hefur dregist vegna anna dómarans." Mummi segir að nauðsynlegt sé að breyta kerfinu og nefnir að möguleg lausn við málinu sé að settur verði upp unglingadómstóll hérlendis, en það kerfi er þekkt víða um heim. „Þú ferð í gæsluvarðhald á meðan málið er í rannsókn. Við höfum séð hvað það er ömurlegt system. Menn sem hafa nauðgað og sitja inni á meðan rannsóknin gengur yfir og þeim er svo sleppt út til að bíða eftir dómnum. Þá er nauðgað aftur. Þetta eru dæmi úr okkar samfélagi,“ segir Mummi og segir vikulangt gæsluvarðhald óásættanlegt. „Þetta á sérstaklega við um ungt fólk. Það er önnur orka í þeim kúltúr. Það er reiðari orka og þau eru tilbúnari til að gera þessa hluti. Þetta þarf að færast saman, orsök og afleiðing,“ segir Mummi.
Tengdar fréttir Dæmdur í sex ára fangelsi þremur árum eftir að brotið var framið Einar Örn Adolfsson segist ekki vera sami maður og hann var þegar hann var 17 ára. 25. maí 2014 19:45 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira
Dæmdur í sex ára fangelsi þremur árum eftir að brotið var framið Einar Örn Adolfsson segist ekki vera sami maður og hann var þegar hann var 17 ára. 25. maí 2014 19:45