Innlent

Mikill hiti í mótmælendum: Kalla þurfti til sérsveitarmenn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Um tuttugu manns mótmæli nú inni í Innanríkisráðuneytinu.
Um tuttugu manns mótmæli nú inni í Innanríkisráðuneytinu. visir/daníel
Um tuttugu manns mótmæltu harðlega ómannúðlegri meðferð á Izekor Osazee, hælisleitanda frá Nígeríu, í innanríkisráðurneytinu um eittleytið í dag.

Mótmælin hófust klukkan tólf við lögreglustöðina á Hverfisgötu en þaðan héldu mótmælendur yfir í innanríkisráðuneytið. Mikill hiti var í mótmælendum á svæðinu og átti lögreglan í vandræðum með að hafa stjórn á mannskapnum.

Fór svo að kalla þurfti til liðsauka og liðsmenn úr sérsveit lögreglunnar. Voru tólf lögreglumenn á svæðinu þegar mest var en mótmælendur yfirgáfu vettvanginn á öðrum tímanum.

Izekor Osazee, flóttamaður frá Nígeríu, var handtekin í gærmorgun þegar hún kom á lögreglustöð til að sinna tilkynningarskyldu. Osazee var sleppt úr haldi eftir að hafa setið í fangaklefa í rúmlega sjö klukkustundir, en brottvísun hennar úr landi hefur verið frestað.

visir/daníel

Tengdar fréttir

Izekor Osazee laus úr haldi

Aðstandendur Izekor hafa boðað til mótmæla á morgun klukkan tólf við lögreglustöðina á Hverfisgötu til stuðnings hennar.

Ekki til skrifleg stefnumótun í útlendingamálum

Izekor Osazee, sem hand­tek­in var í morg­un og til­kynnt að henni yrði vísað úr landi í fyrra­málið, var sleppt úr haldi lögreglu síðdegis í dag. Forstjóri Útlendingastofnunar segir að ekki sé til skrifleg stefnumótun í útlendingamálum hér á landi.

Aðstandendur Osazee mótmæla

„Þetta er eiginkona mín. Fjölskylda mín. Ég mun standa með henni og verði hún send úr landi mun ég líka fara úr landi,“ segir Gísli.

Mótmælt til stuðnings Izekor Osazee

"Þetta eru miklu fleiri en ég bjóst við. Ég er svo þakklátur, að fólk sé að koma sér saman til að veita mér stuðning. Það er ómetanlegt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×