Lagafrumvarp um frestun verkfalls flugmanna lögð fram á næturfundi: Mikill hitafundur Sveinn Arnarsson skrifar 14. maí 2014 22:55 Hanna Birna hefur lagt fram frumvarp til laga um frestun verkfallsaðgerða flugmanna Vísir/GVA/Vilhelm
Hanna Birna Kristjánsdóttir, samgönguráðherra, lagði fram á Alþingi nú í kvöld, frumvarp til laga þess efnis að stöðva verkfallsaðgerðir Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair. Þurfti að greiða atkvæði vegna ýmissa afbrigða frá þingsköpum í upphafi þingfundar, sem hófst kl 22:30. Verkfallsaðgerðir flugmanna hafa kostað ríkissjóð og íslensk fyrirtæki stórfé að mati Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Báðir aðilar hafa fengið tíma til að leysa deiluna sín á milli en þegar ljóst var fyrr í dag að samningaviðræður sigldi í strand og komnar í hnút var það mat samgönguráðherr að eina leiðin til að höggva á hnútinn væri með lagasetningu. Hanna Birna talaði í framsöguræðu sinni að farsællegasta leiðin hefði verið sú að deiluaðilar hefðu axlað þá ábyrgð og tryggt að samningar kæmust á. Lagasetning sem þessi væri algjört neyðarrúrræði og þungt skref hvers ráðherra að fjalla um frumvarp sem tekur á svona verkefnum.Þingforseti hótaði frestun fundar vegna frammíkallaÁrni Páll Árnason sagði í þingræðu sinni af þessu tilefni að sökin væri alfarði ríkisvaldsins. Lögin um frestun verkfallsaðgerða skrifuðust alfarið á reikning stjórnvalda. Að mati Árna Páls Árnasonar væri samtalið milli ríkisvaldsins og aðila vinnumarkaðarins í lágmarki. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Árni Páll áttu í nokkru orðaskaki og ítrekað kallaði Jón Gunnarsson frammí þingræðu Árna Páls. Svo mikill var hitinn að þurfti þingforseti að hóta að slíta fundi ef ekki væri hægt að fá hljóð í þingsal. Í athugasemd við frumvarpið er útskýrt hvaða aðstæður þurfi að hafa til að hægt sé að takmarka verkfallsrétt launþega. Í frumvarpinu stendur: „Þannig er einungis heimilt að takmarka réttinn með lögum ef nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis eða almannaheilla, til þess að firra glundroða eða glæpum og til verndar heilsu eða siðgæði manna eða réttindum og frelsi.“ Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, ráðherra samgöngumála er því á þeirri skoðun að eitthvað af þessu eigi við í tilviki þessa verkfalls. Frumvarpið fer eftir umræður í þinginu nú í kvöld, til umhverfis- og samgöngunefndar til skoðunar og bíður annarar umræðu í þingi, sem verður líklega á morgun, fimmtudag.Hér má lesa frumvarp ráðherra samgöngumála um frestun verkfallsaðgerða
Tengdar fréttir Ríkisstjórnin ræðir lagasetningu á verkfall flugmanna Ríkisstjórnin settist á fund klukkan eitt eftir að ríkisstjórnarfundur var boðaður í hádeginu með litlum fyrirvara. 14. maí 2014 13:30 Líklegt að flugvallarstarfsmenn leggi niður störf til að sýna samstöðu Setji stjórnvöld lög á verkfall flugmanna hjá Icelandair gætu erlend verkalýðsfélög gripið til vinnustöðvunar til að sýna stuðning við flugmennina í verki, segir talsmaður þeirra. Erlend félög greiða í verkfallssjóð flugmanna. 14. maí 2014 07:00 Flugmenn sagðir hvattir til að tefja flugumferð Samtök atvinnulífsins hefur ítrekað við flugmenn að virða verkfallslög. 14. maí 2014 00:01 Lög verði sett á verkfallsaðgerðir flugmanna Samþykkt var á fundi ríkisstjórnar í dag að leggja fram lagafrumvarp á Alþingi til að stöðva verkfallsaðgerðir flugmanna Icelandair. 14. maí 2014 14:22 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira
Ríkisstjórnin ræðir lagasetningu á verkfall flugmanna Ríkisstjórnin settist á fund klukkan eitt eftir að ríkisstjórnarfundur var boðaður í hádeginu með litlum fyrirvara. 14. maí 2014 13:30
Líklegt að flugvallarstarfsmenn leggi niður störf til að sýna samstöðu Setji stjórnvöld lög á verkfall flugmanna hjá Icelandair gætu erlend verkalýðsfélög gripið til vinnustöðvunar til að sýna stuðning við flugmennina í verki, segir talsmaður þeirra. Erlend félög greiða í verkfallssjóð flugmanna. 14. maí 2014 07:00
Flugmenn sagðir hvattir til að tefja flugumferð Samtök atvinnulífsins hefur ítrekað við flugmenn að virða verkfallslög. 14. maí 2014 00:01
Lög verði sett á verkfallsaðgerðir flugmanna Samþykkt var á fundi ríkisstjórnar í dag að leggja fram lagafrumvarp á Alþingi til að stöðva verkfallsaðgerðir flugmanna Icelandair. 14. maí 2014 14:22