Ölvun ungmenna og slys í miðborginni Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 18. maí 2014 09:25
Tveir menn voru handteknir við veitingahús á Stórhöfða í nótt. Annar þeirra var handtekinn um þrjúleytið og er hann grunaður um líkamsárás. Maðurinn var vistaður í fangageymslu en sá sem fyrir árásinni leitaði aðstoðar á slysadeild. Á fimmta tímanum var svo annar maður handtekinn. Hann var ölvaður og er grunaður um eignaspjöll. Maðurinn var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Í gærkvöldi var tilkynnt um slasaða konu á reiðvegi nærri Rauðhólum. Konan mun hafa dottið af hestbaki og var hún flutt með sjúkrabifreið á Slysadeild til aðhlynningar. Þá voru afskipti höfð af tíu ungmennum í bílastæðahúsi við Laugaveg. Ungmennin eru á aldrinum fjórtán til 21 árs og eru grunuð um neyslu áfengis og fíkniefna. Forráðamenn yngstu ungmennanna komu á lögreglustöð og sóttu þau Tilkynnt var um tvö slys á veitingastöðum í miðborginni, annað við Bankastræti en hitt við Laugaveg. Á staðnum við Bankastræti datt stúlka niður stiga og hlaut áverka á höfði. Sjúkrabifreið var send á staðinn. Á staðnum við Laugaveg datt kona og hlaut áverka á höfði. Var hún flutt á slysadeild. Þá var tilkynnt um meðvitundarlausan mann á veitingahúsi í Hafnarfirði. Talið var að maðurinn hefði sprautað sig með ólyfjan og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Að lokum voru þrjár bifreiðar stöðvaðar í Kópavogi og Breiðholti. Í tveimur tilfellum voru ökumenn grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að auki ók annar þeirra sviptur ökuréttindum, en í Breiðholti var sá þriðji stöðvaður eftir að hann virti ekki stöðvunarskyldu. Hann er grunaður um ölvun við akstur.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira