Flóttalegir menn ljósmynda íbúðarhús í Skerjafirði Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. maí 2014 13:19 Maðurinn sem tók myndir af húsunum í gærkvöldi forðaði sér er hann varð ljósmyndarans var. Myndir/Aldís Mjöll
Maður íklæddur hettupeysu var staðinn að því að taka myndir af fjölda íbúðarhúsa í Skerjafirði seint í gærkvöldi.Aldís Mjöll Geirsdóttir, íbúi í Skerjafirði, segir í samtali við Vísi að hún hafi orðið mannsins var um ellefuleytið í gærkvöldi. Hún hafi verið að renna sér á hlaupahjóli þegar hún rakst á hann er hann tók myndir af húsum í Bauganesi og Skeljanesi. „Ég fylgdist mjög mikið með honum og renndi mér framhjá honum nokkrum sinnum, þar af einu sinni beint í flasið á honum og þótti mér hann heldur flóttalegur þegar hann varð mín var,“ segir Aldís. Maðurinn hafi því næst forðað sér í burtu en hann var með hettu á höfði og því erfitt að bera kennsl á hann. Hún segir þó ekki loku fyrir það skotið að maðurinn haf einungis verið að dást að arkitekúr hverfisins en fas mannsins hafi gefið tilefni til þess að áætla annað. Aldís segir að önnur eins mál hafi komið upp í Skerjafirði á undanförnum árum, nú síðast þegar tveir grunsamlegir menn gengu um hverfin og ljósmynduðu hús og því hafi hún haft varann á. Atferli sem þetta bendi oft til innbrotsvilja og því hafi hún látið íbúa hverfsins vita á Facebook-hóp Skerjafjarðar af manninum sem hún rakst á. Vonast hún til þess að nágrannavarsla sem þessi sporni við innbrotum í hverfinu. Fleiri íbúar Skerjafjarðar hafa einnig lýst upplifun sinni af svipuðum mannaferðum í hverfinu á síðustu dögum en í síðustu viku var maður í silfurlituðum fólksbíl staðinn að því að ljósmynda úr bíl á Þorragötu. Hann hafi „brunað strax áfram“ þegar hann sá að tekið var eftir honum. Sá hafði verið í mikilli nálægð við húsin sem hann ljósmyndaði, „eins og hann væri að reyna að sjá inn eða einhver smáatriði,“ segir áhyggjufullur íbúi hverfsins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki fengið tilkynningu um ferðir mannsins þegar Vísir grennslaðist fyrir um málið í dag.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Sjá meira