Innlent

Flóttalegir menn ljósmynda íbúðarhús í Skerjafirði

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Maðurinn sem tók myndir af húsunum í gærkvöldi forðaði sér er hann varð ljósmyndarans var.
Maðurinn sem tók myndir af húsunum í gærkvöldi forðaði sér er hann varð ljósmyndarans var. Myndir/Aldís Mjöll
Maður íklæddur hettupeysu var staðinn að því að taka myndir af fjölda íbúðarhúsa í Skerjafirði seint í gærkvöldi.

Aldís Mjöll Geirsdóttir, íbúi í Skerjafirði, segir í samtali við Vísi að hún hafi orðið mannsins var um ellefuleytið í gærkvöldi. Hún hafi verið að renna sér á hlaupahjóli þegar hún rakst á hann er hann tók myndir af húsum í Bauganesi og Skeljanesi.



„Ég fylgdist mjög mikið með honum og renndi mér framhjá honum nokkrum sinnum, þar af einu sinni beint í flasið á honum og þótti mér hann heldur flóttalegur þegar hann varð mín var,“ segir Aldís. Maðurinn hafi því næst forðað sér í burtu en hann var með hettu á höfði og því erfitt að bera kennsl á hann.

Hún segir þó ekki loku fyrir það skotið að maðurinn haf einungis verið að dást að arkitekúr hverfisins en fas mannsins hafi  gefið tilefni til þess að áætla annað.

Aldís segir að önnur eins mál hafi komið upp í Skerjafirði á undanförnum árum, nú síðast þegar tveir grunsamlegir menn gengu um hverfin og ljósmynduðu hús og því hafi hún haft varann á.

Atferli sem þetta bendi oft til innbrotsvilja og því hafi hún látið íbúa hverfsins vita á Facebook-hóp Skerjafjarðar af manninum sem hún rakst á. Vonast hún til þess að nágrannavarsla sem þessi sporni við innbrotum í hverfinu.



Fleiri íbúar Skerjafjarðar hafa einnig lýst upplifun sinni af svipuðum mannaferðum í hverfinu á síðustu dögum en í síðustu viku var maður í silfurlituðum fólksbíl staðinn að því að ljósmynda úr bíl á Þorragötu.



Hann hafi „brunað strax áfram“ þegar hann sá að tekið var eftir honum.  Sá hafði verið í mikilli nálægð við húsin sem hann ljósmyndaði, „eins og hann væri að reyna að sjá inn eða einhver smáatriði,“ segir áhyggjufullur íbúi hverfsins.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki fengið tilkynningu um ferðir mannsins þegar Vísir grennslaðist fyrir um málið í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×